Kvikmyndir um stríð

Sá þessa um daginn, og var ekki alveg jafn hrifinn og allir:

"Critics and viewers alike have heaped praise on Netflix's new World War One movie All Quiet on the Western Front and called for it to be nominated for an Oscar.

Now, critics and viewers have lauded the WW1 epic as one of the greatest war movies ever made as they described it as an utterly gut wrenching film."

Jújú, alveg vel gerð ræma, og allt það, ekkert óþægilega heimskuleg.  Las ekki bókina, en dettur í hug að einhverju hafi nú verið sleppt.

Mikið af gaurum að þramma um í drullu, stelandi mat af hinum og þessum, skjótandi í allar áttir.

En sú besta frá upphafi?  Nah.

Get nefnt betri: Das Boot, Come and see, Jarhead, M.A.S.H, Grave of the fireflies, Enemy at the gates... osfrv. 

Sú seinasta skorar kannski ekki hátt á raunsæi, en hefur skemmtanagildi.

Meira fyrir skemmtanagildið: The Brotherhood of War, The Bridge on the river Kwai, The Blue Max, Braveheart.  The Guns of Navarrone.

Maður fórnar raunsæi alveg fyrir skemmtanagildið.

Hvað með kvikmynd sem gerist eftir stríð?

Ég er viss um að Leitin að eldinum gerist eftir WW3.  Ekkert eftir nema mutants.  Þeir leita að eldi í 90 mín.  Spennandi.

Eða "The Time Machine" (1960).  Gaur ferðast frá 1900 til einhverntíma seinna, þegar Klaus Schwab & Bill gates hafa komist undan kjarnorkustyrrjöld með þvi að fela sig neðanjarðar, og hafa þjálfað kóvitleysingana sem búa enn á yfirborðinu til að koma þegar lúðrar eru þeyttir til þess að láta éta sig.

Snilld.  Mæli með.

Come and see, í boði Mosfilm.  Peyi lendir á vergangi.  Menn sem aldrei sjást sprengja tré.  Fjöldamorð.  Algerlega súrrealísk rússnesk kvikmynd.  Dáldið drungaleg.  Góð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúnar Már Bragason

Come and See er án efa ein besta mynd sem gerð hefur verið. Að ná að fanga fylgnina, örvæntinguna og viðbjóðinn er fyrir ofan alla aðrar myndir. Sumum gæti þótt myndin hæg en raunsæið er yfirþyrmandi.

Hollywood stríðsmyndir eru bara afþreying með skemmtanagildi án raunsæis.

Rúnar Már Bragason, 3.11.2022 kl. 11:01

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

"Come and see" er raunsæ, og það er þetta raunsæi sem veldur því að fólk horfir frekar á Hollywood stríðsmyndir.

Raunverulegt stríð er nefnilega bara hungur, sjúkdómar og fjölda-aftökur.  Í þessari röð.  Ekki beint uppörvandi efni.

Þá viljum við frekar horfa á Rambo 2, þar sem maður flýgur þyrlu með hugarorku.  Eða eitthvað.  Ef maður veit hvenig svona Huey virkar meikar sú sena engan sens.

Fullkomin poppkorns ræma.

Mæli annars með Mosfilm.  Þú getur fundið Bela Tigr (White Tiger), stórfurðuleg draugamynd sem gerist í WW2.

Og Stalker.

Ásgrímur Hartmannsson, 3.11.2022 kl. 14:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband