15.8.2023 | 16:08
Stórhættuleg öfgahyggja íslenska ríkisins
"Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að greining lögreglunnar bendi til þess stígandi sé í öfgahyggju í samfélaginu."
Í samfélaginu? Nei, meðal yfirvalda? Algerlega. Skoðum:
1: "Rannsókn á þremur mönnum um tvítugt sem handteknir voru grunaðir um að setja upp límmiðar og skilaboð með hatursfullum skilaboðum í Hafnarfirði gætu átt yfir höfði sér allt að tveggja ára fangelsisvist." (sic)
Það er orðið refsivert að líma upp miða.
2: "Málið er rannsakað úr frá 233 grein a í hegningarlögum sem tekur á hvers konar mismunun..."
Þeir segja að það sé mismunun að líma upp miða.
Ljóslega öfgar og ofbeldi yfirvalda. Fasismi, í einu orði.
En, það er meira: Þetta beri að hafa í huga hér á landi þar sem nær helmingur bankakerfisins sé í eigu ríkisins og drjúgur hluti í eigu lífeyrissjóðanna.
Atvinnulífið er að millæu leiti í krumlunum á ríkinu, og erfitt að ná því þaðan.
"Hún bendir á að íslenskir bankar séu í ákafri samkeppni, ekki bara sín á milli heldur einnig við erlenda banka."
Ágætt, það. Ríkið þykist í samkeppni við sjálft sig, og aðra banka sem líoka eru gegnsýrðir af ríkisafskiftum.
Svo við notum nú orðið rétt, aftur: fasismi.
Þeir geta ekki einusinni hirt sorp
"Viðmælandinn hefur þurft að fara með plast og pappír í grenndargáma síðastliðin mánuð, enda nýja tunnan hafði ekki verið tæmd síðan í lok júní. Hann segir þó gengið mjög illa um grenndargáma í Árbæ og ástandið því ekki gott."
Þetta er ekki þjónusta fyrir fólk, heldur störf fyrir gæðinga.
Kommúnistar senda skattfé Íslendinga til Slóvakíu
"Íslensk stjórnvöld hafa handsalað samning við Slóvakíu um kaup á milljónum tonna losunarheimilda til þess að Ísland standist skuldbindingar sínar gagnvart Kýótó-bókuninni. Kostnaðurinn nemur 350 milljónum króna."
Svo gerir Guðlaugur Þór Þórðarson, loftslagsráðherra.
Það vildi ég að Guðlaugur Þór reiddi þessa fjármuni af hendi úr eigin vasa. Þennan pening sjáum við ekki aftur.
Uppgangur kolefnisöfgamanna er genginn of langt.
Svo sóa þessir asnar tíma og fjámunum í útlenda glæpamenn
""Kannski var þetta markmiðið með því að henda fólki á götuna alveg frá upphafi. Þetta var til þess að undirbúa jarðveginn til að kynna til leiks flóttamannabúðir. Fangabúðir fyrir flóttamenn."
Þetta segir Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata..."
Píratar fara fremstír í flokkið með sitt kommúnista bullshit, að vanda. Þeir munu kosta okkur allt, og meira til. Þeir leita allra leiða til þess að niðurlægja landsmenn. Hér, með því að flytja inn einhvern forréttindahóp frá útlöndum, og geyma þá hér á framfærzlu landsmanna.
Skoðum hvernig er farið með Íslenska róna:
"Sumarið er að verða búið og það er ekkert dagrými fyrir karlmenn enn þó að því sé búið að lofa. Þeir eru enn settir inn á bókasöfn, inn um börnin. Það er algerlega út úr kú, segir Maríanna en konur geta farið á daginn í Skjólið."
Endilega. Flytjum inn róna frá útlöndum til þess að hafa þá í hlýju rými, með mat og klæði, á meðan við sendum okkar eigin róna inn á næsta bókasafn, á meðan það er opið.
Þeir borgðuðu Slóvökum 350 milljónir fyrir aflátsbréf. Bara að halda því til haga.
Og það er verið að fárast yfir einhverjum mönnum með límmiða?
Ríkið er að klúðra öllu sem það tekur sér fyrir hendur, systematískt, og þeir segja að einhverjir peyjar með límmiða séu eitthvað vandamál?
Hljóta að vera ansi magnaðir límmiðar, þetta.
Næst hljóta þeir að fara að herja á taggara.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.