Opinberun Jóhannesar í Bónus

Fleiri váfregnir af Vísi, en eins og minnugir menn muna þá sást til konu aka Skóda í gær.  Ástandið hefur bara versnað síðan:

Ice

Einhver kelling úti í bæ er hætt að borða ís, en það sem meira er:

Kartafla

Maður talaði um kartöflu.

Ég vona að þetta séu ekki tengdr frettir, ég meina, hugsið ykkur hve óhugnanlegt það er að vera að tala um einhverja kartöflu á meðan einhver dama er ekki að borða ís.  Og það daginn eftir að að sást til einhverrar annarrar dömu aka um á Skóda.

Hrollvekjandi.  Eins og eitthvað úr Opinberun Jóhannesar.  Íslensku útgáfunni: Opinberun Jóhannesar í Bónus:

"Og áttundi engillinn básúnaði, og þá sást til konu aka Skóda, á meðan önnur borðaði engan ís, og maður lét orð falla um kartöflu.
Og fólkið snerist í marga hringi örvinglað og hrópaði: Er ekki einhver þarna úti, sem er eins og þessi maður sem talar um kartöflu, sem getur talað um eitthvað annað, eins og til dæmis Tomma & Jenna eða eitthvað?"

Augljós fyrirboði einhvers, þetta.

Hverlags kartafla var þetta eiginlega?  Ég hugsa... Gullauga:


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband