21.2.2008 | 23:38
Gefum þeim nammi.
Eða gerum bara eins og seinast: yppum öxlum og segjum "hvað með það?"
Það virkaði ágætlega á Bretana. Þá var fólki svosem sama hver hertók landið, enda ekkert okkar land vort eð er, síðan einhver snillingur gaf Norðmönnum það - sem síðar töpuðu landinu svo í pókerspili til Dana (sem útskýrir andúð ráðamanna á því ágæta spili).
Hver ætti annars að vilja hertaka okkur nú?
Kaninn vill kannski ryðjast inn áður en Rússum dettur það í hug. Ég mæli með því að hvor sem það verður, þá leyfum við viðkomandi að leggja eins margar hraðbrautir og þeir vilja. Ég veit hvað gerðist síðast, og lýst ekkert á að það endurtaki sig.
Ísland eitt 24 herlausra SÞ-ríkja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.