27.2.2008 | 12:13
Þau eru of ströng
Það þarf að hafa fleiri vopn úti á götu, til þess að draga úr líkamsárásum um helgar. Jafnvel drykkju. Þar sem við þykjumst vera siðmenntuð þjóð ætti tilfellum ofbeldis að fækka við slíka ráðstöfun - það hefur gengið eftir í þeim fylkjum USA þar sem slíkt hefur verið leyft.
Um veiðar:
Það þarf sennilega stærri byssur á sel. Ekki öflugri, bara stærri. 10-11 mm, vs. 7.62 og þar um kring eins og er núna.
Það eru líka of mörg hreindýr, og hafa alltaf verið. Þau stuðla að skógareyðingu. Nota þarf vélbyssur á þau orðið. Ekki til að fella einstaka dýr, heldur hjarðir.
Einnig eru kanínur, og í seinni tíð kettir komnir upp í Heimaklett. Það er ótækt. Það þarf einhvernvegin að fá mannskap í að plaffa á allt þetta, og mæli ég eindregið með afsöguðum haglabyssum eða jafnvel skammbyssum í það - vegna nálægðar við bæinn.
Dómsmálaráðherra skipar nefnd til endurskoða vopnalög | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
Þetta eru sönn orð. Því fleiri sem gnga um með byssur í miðbænum um helgar, því betra. Ef einhver fyllibyttan vogar sér að biðja mig um eld, fær hún eld, helvísk.
Villi Asgeirsson, 27.2.2008 kl. 15:10
afsagaðar haglabyssur? Nei, þú hugsar of smátt.... það dugar ekkert nema AK-47 eða jafnvel bara góð sprengjuvarpa á kanínurnar.
Já, og svo eeru allt of fáir skriðdrekar á götunum.
Púkinn, 27.2.2008 kl. 15:27
Kanína er small game. AK-47 er Medium game vopn. M-16 er varmint-vopn.
Svo er yfirdrifið nóg af skriðdrekum á götunum. Að vísu skilst mér þeir hafi betri aksturseiginleika en þessir Landcruiser jeppar sem allir eru svo hrifnir af.
Ásgrímur Hartmannsson, 27.2.2008 kl. 23:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.