28.2.2008 | 13:05
Rothögg eru hvert öðru lík.
Ekki grunar mig samt hvað þessum mönnum gekk til.
Allt í lagi, þeir sjá tvo bíla úti í kanti, annar blikkar, og þrjá menn ræða við einhvern. Þá ákveða þeir: Hey! Ráðumst á þessa! Já, gerum það! Það verður gaman! Vííí!!!
Svo fara þeir og kung-fúa lögguna.
*andvarp*
Svo voru einhverjir þeirra búnir að bófast eitthvað áður. Skömmu áður meira að segja. Menn eru teknir, hengdir og flengdir fyrir að stunda þá fornu og merku íþrótt sem er að míga á húshorn, en þegar menn eru börstaðir fyrir líkamsárás þá mega þeir fara eftir yfirheyrzlu. Þurfa svo kannski að mæta fyrir dóm, þar sem þeir eru rukkaðir um pening sem þeir eiga ekki.
Hugmynd: hvernig væri að skella þeim inn í svona mánuð á meðan verið er að renna málinu í gegnum kerfið, og dæma þá svo í minnst árs fangelsi. Sleppið bara Lalla Johns út á meðan til að rýma fyrri, og tvímennið í klefa.
Auðvitað brjóta þeir af sér aftur um leið og þeir komast út, en það er minnst ár þangað til.
Og akkúrat þessir gaurar eru útlendingar, þeim má auðveldlega vísa úr landi.
Minnti á rothögg í boxi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.