20.3.2008 | 00:16
Það verður ljótt.
Krimmar í Washington DC gætu slasast.
Það er búið að stúdera fylgni milli glæpa og skotvopnaeignar fram og aftur, og niðurstaðan er þessi: eftir því sem auðveldara er fyrir alla að verða sér úti um vopn, þeim mun færri ofbeldisglæpir eru framdir. Það munar allt að 8% á milli fylkja með frjálslynd lög og fylkja með ströng lög.
Aftur á móti er fleyri bílum stolið og meira er um tjón á opinberum eignum þar sem meira er um byssur. (Tíðni bílþjófnaða í Evrópu er hæst í Ísrael og Sviss) Munurinn er allt að 8% milli fylkja.
Sem segir okkur eitt: það er stöðugur fjöldi glæpamanna þarna, sem bara verða að gera eitthvað af sér. Þeim er ekki við bjargandi.
Svo, kaninn verður að velja: byssur, og bílnum verður kannski stolið, eða engar byssur og hann verður þá kannski laminn í hausinn með einhverju og rændur.
Byssulöggjöf fyrir hæstarétt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.