28.4.2008 | 15:57
Ég spáði alltaf 20% verðbólgu.
Ég er enn að bíða. Hver ætli árs - verðbólgan verði? 40%, 50%? Veit ekki. Hún verður vegleg.
Svo eru bankarnir um það bil að fara að eignast alveg heilan helling af fasteignum. Verktakarnir eru allir að sligast undan þeim, og 1: fáir hafa efni á þeim, og þeir sem hafa efni á þeim hafa ekki áhuga því þetta eru hallæris-eignir á lélegum stöðum, 2: bankarnir eru tregir til að lána þeim sem þó hafa efni því þeir vita að þeir fá ekki til baka upp í lánið, 3: það eru einfaldlega ekki nógu margir kaupendur til á landinu = offramboð.
Svo fasteignir gætu lent í höndum útlendra lánastofnana - upp í skuld. Á eðlilegu markaðsverði. Sem veldur því að þeir þurfa að greiða fasteignagjöld, sem er að vissu leiti bara gott fyrir Ríkið.
Verðbólgan skelfileg" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.