17.1.2009 | 17:34
Ágætt að það er kominn annar hópur
Hópurinn hans Harðar torfu höfðar ekki til mín. Hann og hans þý eru bara of miklir sovétmenn fyrir minn smekk.
Ég get alveg skilið það fólk sem vill ekki lengur búa á Sikiley norðursins, en ég sé ekki hvernig við erum bættari með að verða í staðinn að Kúbu norðursins.
Á meðan sitjur Ríkisstjórnin ennþá, og óskar þess í laumi að hún væri stjórn Norður-Kóreu.
Fjöldi manns á Austurvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
Ljóta bullið í þér
Héðinn (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 17:41
Skil point-ið þitt en er ekki erfitt að dæma Hörð sem einhvern Castró - hann hefur nú ekki gert mikið af sér sem hefur komið niður á þjóðarheill. Annað en Don Vito Geir Haarde Corlione!
Þór Jóhannesson, 17.1.2009 kl. 17:44
Bíddu, hvaða hópur ?
hilmar jónsson, 17.1.2009 kl. 17:45
Verði þér að góðu og til hamingju með Ástþór og félaga.
Rannveig H, 17.1.2009 kl. 17:59
Ég myndi frekar mæta á stuðnings fund fyrir núverandi ríkisstjórn heldur enn mótmælafund né nokkuð annað sem Ástþór M stendur fyrir. Gaurinn er bara case!!!!!
gunni (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 18:24
Ásgrímur. Hvað stöðvar þig í því að stofna þína eigin hreyfingu ef þú ert ósáttur við Raddir fólksins?
Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 19:23
Good point there.
Jón Halldór Guðmundsson, 18.1.2009 kl. 00:12
Hvað eruði með á móti Ástþóri? Hann er stórskemmtilegur. Svolítið æstur kannski, en gaman að honum.
Eins og er styð ég alla sem eru á móti Ríkinu. Því fleiri, því betra. Það er alltaf gott að hafa úrval.
Ásgrímur Hartmannsson, 18.1.2009 kl. 00:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.