22.8.2014 | 21:09
Á sama tíma í Írak:
http://edition.cnn.com/2014/08/22/world/meast/iraq-violence/index.html?hpt=imi_c2
65.
En það er í Írak, svo öllum er drullu-sama.
Skotinn til bana í mosku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.8.2014 | 20:11
Þetta vekur upp svo margar spurningar:
Af hverju stálu þeir þessari haglabyssu?
Hvernig var þessi bíll "vanbúinn til aksturs?"
Hver eða hverjir voru á þessum bíl?
Átti sá eða þeir þessa haglabyssu? En bílinn?
Var ökumaðurinn á lyfjum af einhverju tagi?
Lögðu hald á haglabyssu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.8.2014 | 20:05
ISIS virðast miklir snillingar
Ég dáist að rökum þeirra:
"Ef þið hættið ekki að reyna að fá okkur til að hætta að myrða fólk, þá myrðum við fólk!"
Þeim hefði verið vel tekið hér á landi, af kjósendum, og hefðu þeir vissulega náð til mikilla metorða, annað hvort með sinn eigin flokk eða innan raða eins af fjölmörgum kommúnistaflokkum okkar.
ISIS verður að tortíma | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.8.2014 | 08:34
Þessi tafla er nánast ólesanleg
Allt á henni rennur saman í einn graut.
En það er meira:
"ekki síst köfnunarefnisoxíðið NOx"
Svo segir sá sem veit ekkert um hvað hann talar. þetta X stendur fyrir... hitt og þetta. Þetta er *ekki* köfnunarefnisoxíðið, með greini, heldur *öll* köfnunarefnisoxíðsambönd, NO2, NO3, NOH... osfrv.
x er ekki á frumefnatöflunni.
Bílvélar geta búið til hitt og þetta.
"Á meðfylgjandi töflu má sjá að sumir bíla losa óheyrilega mikið af þessum efnum."
Þetta er reyndar stillingaratriði, og eftir að bíllinn hefur verið í notkun í ár er eins víst að sitthvað hafi gengið úr skorðum. Viljandi eða óviljandi.
Tjúnarar vilja fá fullkominn bruna, sem þýðir meira NOx & minna CO2. Með því að kæla loftið áður en það brennur má breyta þessu aðeins, minnka NOx smá.
Svo, ef menn vilja fara út í virkilega heilsuspillandi mengun, geta menn farið aftur að notast við hesta.
Baneitraðir bílar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.8.2014 | 19:59
Kaninn er fljótur að læra:
http://news.msn.com/us/us-rethinks-giving-excess-military-gear-to-police
Þetta tæki áratugi að síast inn hér á landi.
Lögregluaðgerðir eða hernaður? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.8.2014 | 02:43
Elvis hefði verið rekinn frá Íslandi
of mikð af byssum.
Gaurinn var með amk 3 á sér þegar hann fór að hitta Nixon.
Honum hefði aldrei verið treyst af landanum. Fólk hefði pankkerað, falið sg inni í hellum og hringt í lögregluna. Svo hefði lögreglan falið sig inni í hellum til að Elvis næði ekki til þeirra.
Vegna þess að hann var með byssu, sko.
Skotskífa í eigu Elvis Presley seld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.8.2014 | 07:20
Hvernig er það að hafa kristin gildi í heiðri...
Vilja hafa hin kristnu gildi í heiðri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.8.2014 | 09:59
Þetta voru fleiri stofnanir
Í hvert einasta skifti sem ég heyri af þessu, þá er b yrjað að tönnlast á að vegagerðin & spítalarnir hafi eytt meira en þeir máttu.
Eins og kannski var við að búast.
En hverjar voru hinar 5 stofnanirnar?
Gúglum það, til skemmtunar:
http://eyjan.pressan.is/frettir/2014/08/10/stofnanir-samanlagt-7-milljordum-framyfir/
"Veðurstofa Íslands, Sérstakur saksóknari og rannsóknarnefndir Alþingis fara allar meira en 100 milljónum fram úr áætlun."
Veðurstofan?
Jæja...
Og einhver: hversu margar eru þessar rannsóknarnefndir ríkisins?
Reiknum:
7.000.000.000 - (1.800.000.000+1.700.000.000+600.000.000) = 2.900.000.000/3 = ~milljarður.
Meira en 100 milljónir já....
Sakar Vigdísi um ofsa í garð opinberra starfsmanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.8.2014 | 18:20
Geta Kínverjar ekki gert það sjálfir?
Annars sé ég ekki vit í því að lækka bíla. Þeir eru alveg nógu lágir eins og er, alltaf að taka niður, ef ekki á smásteinum, þá á hraðahindrunum.
Það er ekkert hægt að keyra svona.
Japanir lækka líka bíla í Kína | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.8.2014 | 18:15
Þetta var miklu verra en það
Þetta var vont fyrir umhverfið: http://news.yahoo.com/why-cash-clunkers-hurt-environment-more-helped-024848694.html
Með því að henda öllum þessum bílum sem enn voru í fullkomlega ökuhæfu ástandi varð til miklu meira sorp en annars hefði orðið.
Þetta olli því líka að (alveg eins og 15.000 kr skilagjaldi hér) verð á úr sér gengnum notuðum bílum hækkaði - sem er, eins og við hér á íslandi þekkjum vel, verðbólguaukandi.
Og Kóreiskir, japanskir og evrópskir framleiðendur græddu. Ekki svo mjög amerískir.
Bílsmiðir töpuðu á hjálparpakka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |