23.9.2015 | 15:41
Hver ætlar að þvinga þau?
Ekkert ríki hefur rétt til þess að neita, sagði Jean Asselborn, utanríkisráðherra Lúxemburg,
Jú víst, segi ég.
Ríki, verandi sjálfstæð, hljóta að hafa hvert sinn rétt til að játa eða neita hverju sem þeim dettur í hug, hvað sem einhverjum gjörræðistilurðum einhverra lúxemborgara líður.
Haft er eftir Asselborn á fréttavefnum EUobserver.com að eftir sem áður verði ríkin fjögur að framfylgja ákvörðuninni.
Sorrý, en hann hefur ekkert um það að segja. Nema að sjálfsögðu hann geti hótað þeim loftárás.
Getur hann það?
Ég efast ekki um að þau [ríkin sem lögðust gegn samþykktinni] eigi eftir að framkvæma þessar ákvarðanir að fullu í samræmi við lög Evrópusambandsins, segir Asselborn.
Í trássi við þeirra eigin lög? Í hvers valdi?
Evrópusambandið er sakað um að bregðast ekki nógu hratt við. Því þurfi að samþykkja þessa áætlun.
Bullshit.
Frans Timmermans, varaforseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, lét þau orð falla eftir fundinn að hann myndi sjá til þess að ríkin fjögur framfylgdu ákvörðuninni.
Svo hann hefur vald til að senda herinn...
Ef þau gerðu það ekki gæti komið til þess að gripið yrði til viðurlaga.
Áhugaverðir tímar.
Ekkert ríki getur neitað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.9.2015 | 20:51
Hallrímur Pétursson lærði fátt af helförinni, er sagt...
Þessir sálmar voru skrifaðir á sautjándu öld af kristna prestinum og skáldinu Hallgrími Péturssyni, mörgum árum áður en fyrstu gyðingarnir komu til Íslands. Þessi hefð endurspeglar hversu lítið Íslendingar hafa lært af helförinni.
... ha?
Nei, þetta er víst ættað frá þeirri tíð, er Íslendingar báru ekki ábyrgð á öllu sem aflaga fór í fjarlægum kimum jarðar, eins og mér er sagt að nú sé raunin.
Fæstir hluta á sálmana, en upplestur á þeim er hefð.
Mikið er þessum manni umhugað um útvarpsefni hér á landi. Ekki vissi ég að við værum svo mikilvægt fólk.
Þegar kjörnir leiðtogar höfuðborgarinnar samþykkja öfgakennd lög gegn Ísrael og gyðingum, viljum við vara alla meðlimi gyðingasamfélagsins við því að ferðast þangað.
Skiljanlega.
Gerstenfeld bendir á að tillagan um sniðgönguna hafi komið frá Samfylkingunni. [...] Þá sé Össur Skarphéðinsson, þáverandi forsætisráðherra, þekktur fyrir að hunsa Ísrael.
Samfó hefur alltaf verið svolítið höll undir Hamas, af einhverjum orsökum. Veit ekki hvers vegna þeir styðja ekki Hezbollah líka. Þeir ættu að setja Mossad í að skoða það mál.
Og endilega deila upplýsingunum með okkur hér heima, við viljum, nei þurfum að vita meira líka.
Sú ákvörðun Íslendinga að gefa ríkisborgararétt til fyrrum heimsmeistarans í skák, Bobby Fischers, var enn ein skammarleg og andgyðingleg aðgerð Íslands.
Það hafði meira með visðingu fyrir skákhæfileikum þess mæta manns að gera, en undarlegum pólitískum skoðunum hans, sem hann er satt að segja minna þekktur fyrir.
Þá fékk hann árið 2012 heiðursverðlaun ritsins Journal for the Study of Anti-Semitism,
Fékk hann viðurkenningu fyrir að hafa verið tilraunadýr?
Alltaf lærir maður eitthvað nýtt
Passíusálmarnir fullir af hatri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.9.2015 | 14:18
Stal Reykjavíkurborg sem sagt bíl...
Þeir þurfa alvarlega að draga úr þessari flækju valdaframsala sem er stunduð víðsvegar í kerfinu.
Og fækka nefndum. Reyndar myndi fækkun nefnda líklega sjálfkrafa minnka aðeins þessa flækju.
Sem aftur yrði til þess að draga lítillega úr þjófnaði af þessum toga.
Máttu ekki fjarlægja bílinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.9.2015 | 22:29
Eigum við að rifja eitthvað upp?
Viðskiftabann á rússa, einhver?
Flumbrugangur hjá borginni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.9.2015 | 20:14
Þarf að borða meiri graslauk og rósmarín
Nei... *eitthvern* graslauk og rósmarín.
Þetta er fíflagangur. Kaupum endilega meira af ísraelum. Eða jafn mikið. Ég man ekki eftir því að viðskiptaþvinganir hafi nokkurntíma gert neitt gott.
Hvaða vörur koma frá Ísrael? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.9.2015 | 18:30
"Ók gegn rauðu ljósi?"
... ha?
Þú meinar þá að hann hafi farið yfir á rauðu?
Allt er ekki "gegn" öllu, þó vinsælt sé að halda það.
Fyrir svona 10 árum voru aðallega íþróttalið sem spiluðu gegn hvort öðru. Semsagt, voru hvort á móti öðru.
Nú, eins og ég var að segja, er allt gegn öllu. Ætli það endi ekki á því að maður vakni gegn morgninum, borði gegn morgunmatnum, labbi gegn vinnunni og fari svo gegn heim? Alltso þegar kemur að hvað það varðar, eins og menn nú segja.
Ekki er allt kjaftæðið eins.
Slapp með tvöfalt manndráp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.9.2015 | 23:45
Hversvegna skiftir máli hvernig menn myrða hvern annan?
Menn mega víst fletja út heilu borgirnar með fallbyssum, en um leið og einhver blæs smá gasi, þá verður allt vitlaust.
Svona er um fleiri hluti, sem óþarft er að tíunda.
Svo má eitthvað laga þessa frétt - hún er tvítekin að stórum hluta.
Ríki íslams að búa til efnavopn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.9.2015 | 16:47
Jólaskrautið í ár
8.9.2015 | 15:53
Til þess eru vítin að varast þau
Þau verða ekki verri, vítin.
Femínismi og marxismi fyrir þingmenn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.9.2015 | 22:01
... en þú?
En einhver?
Allt í lagi, þetta er bara retorísk spurning svona á netinu, vegna þess að þessu má fletta upp, en: hvað ætli séu margir sem geta nefnt þessa gutta?
Ekki veit ég hvaða menn þetta eru.
Ekki veit ég heldur hvað er fengið fyrir einhvern þjóðarleiðtoga að þekkja nafn og hagi leiðtoga ISIS. Það er fyrir undirmenn ISIS leiðtoganna sjálfra að vita, og landamæragæzluna, ef vera skildi að þeir mætti á Gattvik eða Heathrow.
Lítið spyrst til Hezbolla þessa dagana, almennt. Þeir náðu að hrekja IDF í burtu frá sér fyrir nokkrum árum, og eru nú eitthvað að vesenast í Sýrlandi. Ekki mikið - en þeir eiga einhverja hagsmuni þar.
Veit ekki meir. Don't care.
Al Kæda er til... ekki viss hvar, en skilst það sé í Afríku eitthvað að þvælast. Bíða eftir að þessir ISIS hálfvitar hætti að stela þönderinu af þeim, býst ég við.
Ætli Trump viti hverjir eru núna aðal-bíldarnir í mexíkanska eiturlyfjastríðinu? Þeir eru nær. Innan skotfæris frá USA, meira að segja. Og alveg jafn morðóðir.
Þekkti ekki til í Miðausturlöndum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |