15.7.2014 | 10:03
"Visthæfir bílar"
Af einhverjum orsökum hefur sú dularfulla grilla skotið sér niður að CO2 sé eitraðasti hluti bifreiðaútblásturs.
Svo er ekki.
Reyndar er það með skárri efnum sem þaðan koma, og bráðnauðsynlegt í öllum vistkerfum.
Fólk...
Tesla fær ekki að leggja frítt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.7.2014 | 09:57
Þetta er ekki tilgangslaust
"Peter Beaumont, fréttaritari The Guardian í Jerúsalem, segir að hernaðurinn sé tilgangslaus og hvorki Ísraelar né Hamas-menn geti farið með sigur af hólmi."
Hamas hefur verið að gefa til kynna að þeir eru enn til. Það hafa þeir gert með nokkurhundruð morðtilræðum undanfarið.
Ísraelar verða að skjóta aðeins á þá, til að draga aðeins úr tíðni þessara tilræða. Bara smá. Sem er ágætis áróður fyrir Hamas, sem geta þá kveinkað sér.
Ísraelarnir vita vel að það sem þeir neyðast til að gera er áróður fyrir óvini þeirra, sem er einmitt ástæða þess að tala látinna er enn innan við 200, en ekki miklu skiljanlegri tala, eins og til dæmis 20.000.
Seinni talan væri staðreynd ef þetta væru einhverjir afrískir kynþættir sem öllum er sama um. En af því að þetta eru góðkunningjar okkar og gæludýr, Ísraelar & palestínuarabar, þá brennur hjarta okkar allra fyrir þá.
Að sögn.
Hafa orðið tugum barna að bana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.7.2014 | 19:54
Reiknum nú, okkur til skemmtunar:
Ég get ekki lofað að tölurnar hér á eftir séu allar réttar, þar sem ein forsendan er af Wikipedia. Bara svo það sé á hreinu.
En hvað um það:
MBL segir: 135 Palestínumenn liggja í valnum á fimm dögum
Það munu vera 27 á dag. Drepnir af Ísraelum. Af færi, með eldflaugum. Ég giska, Hellfire.
Nú, Palestínuarabar ku vera 2.731.052, samkvæmt síðustu talningu CIA.
Morðtíðnin þar mun vera, skv wiki, 7.4 morð/100K íbúa, eða 202 á ári, með frjálsri aðferð. Eða færri en eitt á dag - gefið að tölurnar séu réttar. Sem ég get ekkert lofað.
(Edit: hafa ber í huga að Ísraelar gera ekki meiriháttar (miðað við þetta svæði) sprengjuárásir á vesturbakkann á hverju ári.)
Ekkert lát á mannfallinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 20:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.7.2014 | 21:40
Ekki mjög góðir að reikna út fylgni?
"Engin sjáanleg aukning hefur verið á bjórsölu á Íslandi frá 12. júní..."
Gerðu þeir bara línurit fyrir mánuðinn og horfðu svo á það?
"Bjórsala er orðin það mikil að jafnvel þrátt fyrir að margir knattspyrnuáhugamenn sötri nokkra bjóra yfir hverjum einasta leik, á nánast hverjum einasta degi í mánuð, mælist það ekki."
Ef það væri breyting, þó ekki væri nema lítil breyting, þá ætti það að sjást. Það sem við erum líklega að sjá hér er "mettun."
Eða algjöra vankunnáttu í tölfræðilegum útreikninum.
"Það er engin sjáanleg aukning. Frá 12. júní er aukning í bjórsölu upp á 3% en þegar maður skoðar síðustu sex mánuði er meðaltalið 3,8%."
Aukning? Á mánuði? Í hvað mörg ár? Undarlegt finnst mér ef bjórsala eykst um 3,8% að meðaltali á mánuði.
Og ég er nokkuð viss um að smáorðið þarna á að vera "á," en ekki "í."
"Stutta svarið er því að það stendur ekkert upp úr í sölutölum sem rekja má til HM,"
En það er rangt, samkvæmt síðustu tilvitnun hér að ofan. HM hefur þar augljóslega *dregið úr* aukningunni um 0,8%.
"Sigrún Ósk segir hins vegar að bjórsala á Íslandi sé í raun svo mikil að jafnvel þó sala aukist gríðarlega á einhverjum ákveðnum degi, þá sjáist það varla þegar á stóru myndina er litið."
Já já já, Sigrún kann ekki tölfræði.
"...ef litið sé til stórmóta í íþróttum á undanförnum árum finnist ekki fylgni við aukna bjórsölu."
Drógu þau líka úr aukningunni?
Hvernig er annars þessi aukning? Hvenær fór að bera á henni? Gengur þetta kannski í bylgjum? Hvar er þessar upplýsingar að finna?
" Við erum ekki að sjá nein afgerandi áhrif varðandi fylgni við íþróttaviðburði "
"áhrif á." Ef ekki af öðrum ástæðum en að *á* er styttra en *varðandi.*
Að troða "varðandi" inn í aðra hverja setningu er eins og að setja "andskotans" inn í aðra hverja setningu.
" En við gætum kannski séð fylgni ef að þetta væri einn alveg risadagur eða eitthvað svoleiðis, segir Sigrún Ósk."
Eða ef þið vissuð hvað þið væruð að gera.
Enginn bjór drukkinn yfir HM? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.7.2014 | 08:22
Alveg eins og venjulegur Civic
Biksvartur Honda Civic | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.7.2014 | 07:10
Tæknilega rétt
en alveg jafn ólöglegt.
En - rétt engu að síður. En aftur: lögin hafa ekkert með "rétt" að gera, og allt með... annars konar rétt.
Munurinn á rétti og því sem er faktískt rétt er svona eins og munurinn á maraþonhlaupi og ávaxtahlaupi.
Ók á 150 til að halda sér vakandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.7.2014 | 00:11
Hlýtur að vera sérlega fámenn þjóð
29? Hve stór prósenta er það af heldinni?
Skoðum:
SKV CIA eru vesturbekkingar 2.731.052. Semsagt: 0.0000106%. Eða þar um bil. Og þeim fjölgar um 63.000 á ári.
Sem þýðir, að til þess að þetta virki sem þjóðarmorð, þurfa Ísraelar að ná í napalmið og fara að carpet-bomba, vegna þess að þeir þurfa að salla niður vel meira en 60K manns á ári.
Þjóðarmorð?
Sakar Ísraela um þjóðarmorð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.7.2014 | 21:38
Súrrealískt
Valtteri Bottas hjá Williams sló í gegn og varð annar í mark
Bæði?
Hann sagðist undrast þann hraða sem bíll hans bjó yfir í brautinni.
Þetta var alls ekkert hraðskreiður bíll, nei nei, hann bara "bjó yfir hraða." Hvað hann var hinsvegar að gera í brautinni veit ég ekki, né heldur hvernig hann komst þangað. Eru menn alveg vissir um að hann hafi ekki verið *á* henni?
Fram að fyrsta stoppi var hraðinn mjög góður og ég færðist fram á við.
Minn bíll færist líka oftlega fram á við, sérstaklega þegar hann er ekki í bakkgír. Þá ferðast hann nefnilega afturábak
Bottas segir árangur sinn kraftbirtingarform þess að Williamsliðið sé í mikilli framför.
Þetta er sko fokking ljóðrænt. Ekki það að ég botni í merkingunni, en fokking ljóðrænt, maður.
Felipe Massa, varð að hætta keppni á fyrst hring eftir að hafa dregist inn í hið harkalega óhapp Kimi Räikkönen hjá Ferrari.
Dregist inní óhapp? Hvaða hvaða... menn festir saman með streng núna?
Bottas undraðist bílhraðann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.7.2014 | 21:31
Svarar ekki kostnaði
300K+ fyrir *bara* rútupróf? Og vera þá á ekkert spes launum?
Nei.
Ætli þeir verði þá ekki bara að ráða einhverja útlenda menn sem hafa fengið prófið með hjálp MS paint.
Skortur á rútubílstjórum á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.7.2014 | 21:16
Góð hugmynd
Já 118 verður Já 1818 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |