24.6.2014 | 20:15
Bítur aftur
Luis Suárez enn að bíta - myndband | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.6.2014 | 20:13
Orðið er "afturkallaði"
Sneri við dauðadómi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.6.2014 | 20:12
Margt þarna sem vert er að skoða nánar:
"...á undan Bandaríkjunum, sem eru í 21. sæti. Fyrir utan Nýja Sjáland skipa Evrópulönd tíu efstu sætin og eru einnig fjölmörg þar á eftir."
Svo að skilja, að á lista þar sem eru fleiri en 21 hlutur, eru margir hlutir á eftir þeim fyrstu 10?
"...að finna út hvað það sé sem fólk sækist eftir í gjörðum og framkomu ákveðinni landa."
Gjörðum og framkvæmdum landa? Það var og.
"Vandamálið við útreikning vísitölunnar er að hún notast við ákveðinn fjölda gagnasafna sem ná bara til ákveðinna málaflokka."
Alltaf vandamál, en það verður að halda tölunum viðráðanlegum.
" Þannig dettur Ísland niður um þónokkuð mörg sæti þegar kemur að framtíðarhorfum ..."
Pet peeve, ég veit, en hvað er alltaf að koma að öllu?
"Það skilar okkur í 101. sæti almennt varðandi framtíðarhorfur..."
Þetta er ekki góður stíll.
"í heild erum við í efsta sæti þegar kemur að náttúru og loftslagi..."
Hvað kemur að náttúrunni og loftslaginu?
"...og í 15. sæti yfir aðkomu að stöðugleika í heiminum."
Hvað þýðir það eiginlega? Ég er ekki viss um að þetta sé á neinu mennsku máli:
"Aðkoma að stöðugleika?" Er heimkeyrzla að honum? Kannski bílastæði fyrir framan hann?
"15. sæti yfir..." hef ekki heyrt þá málnotkun áður.
Nei, ég hef ekki hugmynd um hvað neitt af þessu þýðir.
Írland er besta land í heimi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.6.2014 | 19:45
Þau hafa heldur ekkert gott af því
Börnin erfa lítið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.6.2014 | 07:34
Þessir skátar, alltaf hlaupandi um gráir fyrir járnum
Að þessi samtök skuli hafa verið leyfð hér á landi. Menn sem ganga um með deadly hnífa, sem eru eingöngu notaðir í ólöglegum barnamorða-innrásar-hernaði, undir því yfirskyni að vera "ávallt reiðubúnir."
Svo kunna þeir líka allir á reipi, sem er augljóslega allt eitthvað BDSM tengt, sem er líka bara spúkí.
Sá vopnaði reyndist skáti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.6.2014 | 22:10
Fer yfir í VG, þar sem er bara stundaður venjulegur popúlismi...
Eða ekki. Pólitík á íslandi er öll popúlismi. Allt kjósendum að kenna.
Ef þessi gaur er svona á móti popúlisma, þá er pólitík ekki rétta starfið fyrir hann.
Þetta mun nefnilega ekkert breytast.
Segir sig úr Framsóknarflokknum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.6.2014 | 21:58
Hillary er bírókrati
Það er ekkert að marka slagorðin með henni eða á móti, bara það sem hún segir og gerir.
En ... hver nennir að fylgjast með því?
Nei. Fylkingarnar verða tvær, eins og venjulega: þeir sem eru rosalega framsæknir og styðja hana vegna þess að hún er *KONA* (insert guða-noise here) vúÚúÚúÚ... osfrv... og hinir sem eru á móti henni vegna þess að þeir eru meðlimir í KKK og hvaðeina.
Hey, við vorum einu sinni með lesbíu við völd. Hún var hvorki framsækin né frjálslynd.
Ekki veit ég hvað kaninn gerir, en það er ég viss um að íslenskir fjölmiðlar veðja á og styðja Hillary. Vegna þess að þeim er tamt að styðja rangasta manninn.
Getur eitthvað stöðvað Hillary? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.6.2014 | 07:53
Gefur "Swiss Miss" alveg nýja merkingu
Instant kona, blandið bara vatni og hrærið: púff! Kona!
Væri vissulega jafn töff og það er súrrealískt, en...
Orðið sem þið leitið að er "hóra," eða "vændiskona," "mella," eða jafnvel "portkona." Til eru mörg orð, eins og glöggir sjá. Óþarfi að finna upp einhver nýyrði.
Rændi skyndikonu sem lögreglumaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.6.2014 | 23:54
Það er frekar auðvelt, í flestum tilfellum, að losna við sykurlöngun
Maður gerir það einfaldlega með því að eldast.
Krakkar eru meira fyrir sykur en þeir sem eldri eru. Þið munið finna það, eftir því sem þið eldist, að kökur verða smám saman ólystugar.
Vissulega eru til undantekningar, en það er ekkert hægt að vera að púkka upp á svoleiðis alltaf. Undantekningarnar verða bara að vera það sem þær eru í friði.
Hvernig er hægt að losna við sykurlöngun? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.6.2014 | 12:15
Brain drain?
D-listi stærstur nema í borginni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |