Það er nú léleg herstöð

Hvað, eru miðaldir hjá þeim eða hvað?


mbl.is Enginn byssumaður í herstöðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir læra

Hryðjuverkamennirnir, meina ég.

Merkilegt að þeir hafi ekki byrjað á svona árásum fyrir 15 árum.  Þetta var augljóst skotmark þá.  Þeir einu sem voru (og eru enn) með einhverjar ráðstafanir á fligvöllum til að hindra svona lagað eru Ísraelar.

Reyndar er mest mannþröng alltaf í vopnaleytinni - það hefði verið best hjá þeim að byrja þar.  Og fyrst þeir voru þrír - senda einn til að plaffa á vopnuðu verðina fyrst, til að fá að vera í friði í þetta auka korter.

En vitið til, þeir læra.  Næst verður þetta kannski gert betur.


mbl.is „Þetta var eins og í helvíti“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstofnun sem virkar?

Vá... ég er í alvöru hissa.


mbl.is Ekki undir lögaldri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fótbolti sem slíkur er hættulegur

Til vtnis um það er mikill fjöldi slitinna liðbanda, skemmdra liðþófa, hverskyns tjóns á nára og víðar.

Menn eru heppnir ef þeir sleppa án örörku.

En það gildir náttúrlega mest um leikmennina.

Áhorfendurnir eru flestir kyrrsetumenn.

En það gildir um flestar, ef ekki allar íþróttir.  Hvaða íþróttir valda ekki beinlínis örorku við mikla ástundun?

Pílukast, kannski.


mbl.is Getur EM verið hættulegt heilsunni?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonum nú að 33% þjóðarinnar hafi ekki verið að gera mistök fyrir okkur

Hvernig harmónerar hann með pírötum?

Við fáum einhverja svoleiðis, verið viss.

Skrifar hann möglunarlaust undir allt?

Vonum ekki.

Hvað gerir hann nú?

Komumst að því.

Ég veit ekkert hvað fólk sér við þennan gaur.  Ég held ég komist aldrei að því.  Ekki að það hafi verið frábært úrval, en... af hverju þessi?  Vegna þess að hann virkar svo meinlaus?  Eitthvað annað?  Hvað?


mbl.is Guðni kjörinn forseti Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir búnir að kjósa?

Menn verða að mæta, þó ekki sé til annars en að skila auðu.

Ef ekki, þá getiði peppað ykkur aðeins upp með þessu mjög svo hallærislega lagi hérna, með þessari mjög svo hallærislegu hljómsveit, sem er annars betur þekkt fyrir aðra, skárri hluti:


Áfall? Þetta verður gott fyrir okkur

Þetta veldur miklu minna veseni í viðskiptum við breta, held ég.  Þarf bara að tala beint við þá núna, ekki að filtera neitt gegnum evrópu.

Getum við ekki gert fríverzlunarsamning við þá?


mbl.is Áfall fyrir alla heimsbyggðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir sem eru ósammála þér eru öfgamenn

Ég man þá tíð að "öfgamaður" þýddi svolítið annað.


mbl.is Gefur öfgahópum byr undir báða vængi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eh... hvað með skattinn?

Skatturinn í USA virkar þannig, að hann lítur á þetta sem einhverskonar auðsöfnun af hálfu þeirra sem fengu þessa gjöf.

Og mun rukka skatt af þessu.  Og fara með það alla leið.

Vitiði hvernig skatturinn á Íslandi er?  Sami díll: enginn afsláttur, engin misskun.  Ef þetta fólk getur ekki borgað, þá: fangelsi.

Gjöf sem heldur áfram að gefa, þetta.


mbl.is Oliver sló gjafamet Opruh
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gengi upp ef þetta væri fjármagnað af einhverjum öðrum

Svona lagað var gert í Úganda og á Indlandi, og var í báðum tilfellum sjálfhætt þegar batteríið sem fjarmagnaði tilraunirnar varð uppiskroppe með pening.

Í framkvæmd yrði þetta gríðarleg sóun á pening, og svona:

1: Þú rukkar fyrir þetta í gegnum skatt.  Þetta eru mikil útgjöld, sem þýðir mikill kostnaður í kerfinu við meðferð peninga.  Rafrænir openingar eða ekki, allt kostar.  Vegna þess að mannahald kostar.

2: Vegna nr. 1 hér að ofan er sá sem borgar jafn mikið í skatt og hann fær út úr þessu mjög sáttur.  Þeir sem eru með nægar tekju til að standa undir kostnaði við að eiga stórt einbýlishús, sumarbústað tvo bíla og hund og kött taka ekki eftir miklum lífskjaramun, bara einum auka-lið á skattframtalinu.  Sem er trúlegast mínus.

Fyrir þessa hefði verið ódýrara að sleppa bara tekjuskattinum.  Það fæst allt með eignasköttum og neyzlusköttum hvort eð er.

Fyrir þá sem eru með tekjur sem eru skattlagðar *undir* þessari útborgun er þetta gróði, en *fyrir ríkið* hefði líka verið ódýrara að sleppa bara tekjuskattinum.

3. Landið verður að vera byggt mjög auðugu fólki ef þetta á ekki að orsaka flótta ríks fólks frá landinu, eða einhverjar skattabrellur.

Og eins og svisslendingar sjálfir benda á: allskyns óþjóðalýður myndi streyma inn, eða í það minnsta reyna það.

Forsendan er millistétt sem er bæði stór, og á mikið af pening til að brenna.

Og jafnvel þá, þá væri ódýrara fyrir þá að bjóða bara uppá atvinnuleysisbætur.  Vegna þess að hringl innan ríkisins kostar allt of mikið.

Og það er það sem þetta er.

Hér á landi tapast 1/4 af skattfénu í hræringar innan kerfisins.  Mjög varlega áætlað.


mbl.is Borgaralaunum hafnað í Sviss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband