11.9.2017 | 00:01
Ef við þyrftum að flytja inn kol þá væri líklega enginn iðnaður
Engin álver í það minnsta, eða málmblendi. Of dýrt.
Það að skifta um orkugjafa hefur áhrif.
Svo virðast þessir gaurar líta framhjá allri menguninni sem gýs uppúr jarðhitavirkjunum. Í tonnavís. Áberandi mengun það, og skaðleg. Hef ekki humynd um hvaða áhrif hún hefur á fólk, hef mínar efasemdir um að þær gufur séu eitthvað hollar, verandi brennisteinn og allt það... en sú mengun skemmir raftæki.
(Svo er öll raforka í kólumbíu ekkert komin frá kolum. Þar eru stíflur líka. Algerlega af praktíksum ástæðum. Kol eru vesen, alveg burtséð frá mengun.)
Myndum aldrei kaupa kol í þessu magni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.9.2017 | 23:49
Þetta er gullnáma
"Eldsneytisbrennsla og loftslagsbreytingar eru þeir mengunarþættir sem vega þyngst í framleiðslu á áfengum drykkjum."
Loftslagsbreytingar eru mengun núna.
"Notkun á glerumbúðum undir vín og bjór er heldur ekki jákvæð, þó það geti skipt máli hversu þungar glerflöskurnar eru."
Jú víst. Þetta eru endurnýtanlegar umbúðir. Því eru þær ekki nýttar þannig?
"Nýi heimurinn stendur sig þó betur en sá gamli í þessum efnum"
Bandaríkin og Ástralía nota gler. Evrópa notar gler. Sama efni, sömu aðferðir. Hvernig getur annað verið betra en hitt?
"Þetta segir Sigurpáll Ingibergsson, gæðastjóri ÁTVR, en norrænu áfengiseinkasölurnar sameinuðust árið 2014 um að láta útbúa vistferilsgreiningu á áfengum drykkjum."
Þar fór sá aur fyrir lítið.
"Í vistferilsgreiningunni eru tilgreindir níu umhverfisáhrifaflokkar: áhrif á öndunarfæri (öndun ólífrænna og lífrænna efna), hnattræn hlýnun, upptaka náttúru, visteitrun í jörðu og vatni, ofauðgun í jörðu, ljósefnafræðilegt óson, ofauðgun í vatni, súrnun og vinnsla jarðefna."
*áhrif á öndunarfæri - ekki anda víninu að ykkur.
*hnattræn hlýnun - galdrar, semsagt.
*upptaka náttúru - á hverju?
*visteitrun í jörðu og vatni - hvernig sker "visteitrun" sig frá annarri eitrun?
*ofauðgun í jörðu/ofauðgun í vatni - ofauðgun hvers?
*ljósefnafræðilegt óson - ... ha?
*súrnun og vinnsla jarðefna - sem þýðir hvað?
Af hverju grunar mig að hér hafi einhver verið að svindla stórt á ÁTVR?
"Fæstir leiða væntanlega hugann að kolefnissporinu sem að vínglasið eða bjórflaskan sem þeir dreypa á skilur eftir sig"
Enginn, leifi ég mér að fullyrða.
"Þannig vegur landbúnaður og umbúðaframleiðsla þyngst í tilfelli léttvína og bjórs,"
Réttið upp hönd nú, hver veit ekki að bjór og vín eru landbúnaðarafurðir? Og brennivín reyndar líka, þó það sé farið að verða meira iðnaðar-hliðarafurð.
"...þó að framleiðsla og geymsla séu einnig veigamiklir þættir varðandi bjórframleiðsluna."
Mér finnst að það ætti að draga af laununum hjá fréttamönnum í hvert skifti sem þeir segja eða skrifa "varðandi," "hvað það varðar," eða "þegar kemur að..."
Ég hef séð rannsóknir sem sýna að það þyrfti að nýta glerflöskuna 20 sinnum til þess að ná sömu umhverfisáhrifum og með fernur, plast- eða áldósir.
Seljið það bara í lítratali úr dælu þá, eins og bensín, ef þið hafið svona miklar áhyggjur. Fólk mætir með eigin ílát.
Myndi virka vel fyrir rauðvín og vodka, ekki svo vel fyrir bjór.
"Sigurpáll segir ákveðinn hóp íslenskra neytenda þegar vera meðvitaða um þetta. Þannig séu dæmi um að viðskiptavinir Vínbúðanna hafi sett sig í samband við starfsfólk eftir að hafa vegið vínflösku og komist að því að 750 ml flaska vegi jafnvel 1,5 kg."
Það eru nördar þarna úti sem vigta vínflöskur. Og þeir hringja í ÁTVR og segja frá því... af einhverjum ástæðum.
Erum við viss um að það hafi ekki verið peyjarnir þarna í útvarpinu með eitthvert grín?
Þegar fólk áttar sig á þessu þá hefur það jafnvel tilkynnt okkur að það ætli ekki að kaupa þetta vín framar.
Hljómar alveg nákvæmlega eins og Tvíhöfðaskets.
Raunveruleikinn hefur bráðnað, dyr í vídd heimsku hefur opnast og hleypt inn í okkar óværu af tegund sem við viljum ekki fá. Takk ÁTVR, að hafa með loftslagsgöldrum summonað þennan andskota í okkar vídd. Fuck!
"Spurður hvort ÁTVR hafi hug á að kynna betur hvaða vörur teljist umhverfisvænar, segir hann fyrirtækinu þeir annmarkar settir að það megi ekki hampa neinum einum frekar en öðrum út frá hlutleysissjónarmiðum."
Nei, segðu okkur. Svo ég geti einbeitt mér að því að kaupa þær vörur sem menga sem mest. Öðruvísi verður óværan sem þeir hafa kallað yfir okkur ekki rekin til baka.
Í nafni olíu og kola og heilagrar kjarnorku, amen.
Mældu sótspor tegundanna í Vínbúðunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.9.2017 | 14:08
Rottugengið
4.9.2017 | 22:24
En vita þeir hver rót vandans er?
3.9.2017 | 23:19
NK búnir að mastera kjarnorkusprengjur
"Some estimates put it at 100 kilotons, which would be five times more powerful than Fat Man, the bomb dropped on Nagasaki."
Það er aldeilis þeir hafa efni á úrani. Þeir, sem hafa ekki einu sinni efni á að lýsa pleisið upp:
Misjafn er forgangur manna.
Bregðast við með umfangsmiklum hernaði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |