31.5.2020 | 12:00
Þetta eru stórmerkilegar óeirðir
Hérna sjáum við að óeirðaseggir hafa ákveðið að gera innrás í höfuðstöðvar CNN í Atlanta:
Hér sjáum við verzlunareigendur standa vörð svo óeriðaseggir kveiki ekki í húsunum þeirra:
Eitthvað minna varð um skemmdir þar sem þessir menn ákváðu að mæta vopnaðir:
https://www.theguardian.com/us-news/2020/may/07/michigan-lawmaker-armed-escort-rightwing-protest
Höfum þetta héðan líka, vegna þess að the guardian eru ámóta traustverðir og RÚV: https://eu.detroitnews.com/story/news/politics/2020/05/28/we-have-arm-ourselves-michigan-demonstrators-protest-brutality/5275209002/
Það er stemming þarna úti, greinilega.
30.5.2020 | 20:37
Antifa...
Ef menn treysta ekki Breitbart, hér er Tim Pool:
Hann segir: "hvítir menn streyma inn í fylkið til þess að kveikja í eignum svartra."
Margar álpappahatts-kenningar reifaðar.
Og RT sér spaugilegu hliðarnar:
https://www.rt.com/usa/490263-trump-russia-cnn-protests/
Einhver fámennur en öflugur hópur viðrist vera að verki. Það er ekki hægt að útiloka Antifa. Þeir eru þá orðnir talsvert öflugri núna en Baader-Meinhof.
![]() |
Ástandið muni versna í kvöld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.5.2020 | 15:23
Ósáttir við iðnað á iðnaðarsvæði
Hvað gerist þegar þetta blessaða fólk fer út, og kemst að því að það er umferð á vegum, viðskifti í verzlunum og tré í skógum?
![]() |
Ósáttir við bílakirkjugarð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.5.2020 | 16:06
Hvað með það?
Þetta endar hjá börnunum á endanum hvort eð er. Því ekki núna?
Næsta kynslóð rústar svo öllu. Þetta endar í fleiri höndum líka.
Einkafyrirtæki...
![]() |
Hlutabréf í Samherja sumargjöf í stærri kantinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.5.2020 | 16:20
12-18 milljarðar...
Það eru, hvað? 6-10 milljarðar beint í ríkiskassann. Sem hefði nægt fyrir þessu og vel það: https://www.visir.is/g/20201453738d/-skammar-leg-a-kvordun-hsu-ad-segja-upp-ollu-raestinga-folki
"Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, sem kveðst mótfallin hernaðaruppbyggingu. Mér finnst óviðeigandi að blanda aukinni hernaðaruppbyggingu inn í efnahagsaðgerðir stjórnvalda."
Já, þessi illu hernaðarmannvirki í Reykjavík, Keflavík og á Egilsstöðum, sem hafa verið að dæla hingað blóðpeningum með túristum.
VG til huggunar hefur nú dregið úr þessu flóði blóðpeninga vegna Kína-kvefsins.
Allir þessir skaðræðis ný-hernaðar flugvellir voru lagðir til að berjast við aumingjans félagshyggjumenn sem höfðu ekkert gert af sér. Þeir voru bara að berjast gegn alheimskapitalismanum. Leiðtogi þeirra var vegan, listhneigður og mikill dýravinur. Allir sem dyrfast að stíga fæti á þessi hernaðarmannvirki eiga hlutdeild í falli sósíalismans í Evrópu, og víðar.
Eilífur andi Pol Pot grætur blóði í hvert sinn sem einhver leggur af stað með Boeing.
En veltum okkur ekki uppúr fortíðinni. Horfum til framtíðar: þarna er verið að neita okkur um höfn sem hefði skilað þjóðarbúinu tugum milljóna á ári, og störfum fyrir tugi manna áratugum saman.
Já... allt vegna þess að einhverjir þursar lifa í fortíðinni. Hvernig stendur á því að þeir hafa enn ekki frétt af lokum Kalda stríðsins? Ég hef mínar kenningar....
Hvaða fleiri hernaðarvélum geta VG mótmælt?
Radar? Auðvitað. Loran. Asdik. Sónar. Allt meira og minna þróað til að klekkja á kommúnistum.
![]() |
Þungt högg að verða af hundruðum starfa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.5.2020 | 16:16
Í tengdum fréttum:
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2020/05/14/hofnudu_framkvaemdum/
Það er gífurlegt atvinnuleysi. Það lýst VG bara vel á.
![]() |
Djúpt en vonandi stutt samdráttarskeið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.5.2020 | 15:44
Kamri breytt í skrifstofurými.
Byggingarfulltrúinn í Reykjavík hefur samþykkt breytingar á Náðhúsinu í Nauthólsvík [...]Þar verður opið skrifstofu- og kynningarrými í stað fyrirlestrarrýmis.
Þetta er áhugavert. Verður þetta skrifstofurými útbúið þannig að fólk geti verið á dollunni í vinnunni?
Ég meina, Kína-kvefið stendur ekki yfir endalaust, sá tími mun koma að fólk mun almennt hætta að þvo sér um hendurnar, og mun því fara að fá allskyns pílur í magann, jafnvel í vinnunni.
Það getur verið gott fyrir skrifstofurekstur að hafa skrifstofuna á náðhúsi við slíkar aðstæður, svo fólk þurfi ekki að missa eina sekúndu úr vinnu þó það fá steinsmugu, eða jafnvel hvellskitu.
Annars finnst mér magnað að einhver kamar skuli vera nógu stór til þess að rúma svona starfsemi.
Ég ætlaði að kíkja þarna um daginn, en bara hreinlega gleymdi því. Maður hefði getað gengið þarna örna sinna á alveg hreint konunglegan hátt, á þessum dýrasta kamri landsins. Ekki það að mig vanti sérstaklega salerni sem er nógu stórt til að rúma skrifstofu. Bara svona prófa einu sinni. Það hlýtur að vera mögnuð upplifun.
![]() |
Náðhúsið fær annað hlutverk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 16:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2020 | 20:50
Hvað er "Obamagate?"
Youtube kemur til hjálpar:
frá Bretlandi:
Fullt af heimildum, þetta hefu tekið langan tíma að vinna.
Kani. Segist vera demókrati - hann talar eins og kjósandi sjálfstæðisflokksins reyndar. Ég og fleiri kannast við tilfinninguna þegar flokkurinn sem maður fylgir er búinn að vera í einhverjum dularfullum torfærum þar sem hann á alls ekkert að vera. Og núna eitthvað svona rugl:
Við getum borið þetta saman við fréttaflutning af Vísi, þar sem stendur u málið: "Eins og bent er á í umfjöllun Politico notar Trump ásakanir sem þessar til að draga athyglina frá sjálfum sér og ásökunum í hans garð. Þetta hefur hann gert um árabil og margar af ásökunum hans hafa beinst gegn Obama."
Það lítur út fyrir að appelsínuguli maðurinn hafi rétt fyrir sér. Aftur.
13.5.2020 | 15:43
Útlend fyrirtæki njóta góðs af því að Íslenska Ríkið kann ekki að reikna
Alþjóðlega auglýsingastofan M&C Saatchi stóðst allar hæfniskröfur útboðsgagna Ríkiskaupa vegna markaðsverkefnisins Ísland saman í sókn en verkefnið er hluti af efnahagsaðgerðum stjórnvalda vegna COVID-19.
Skoðum þetta - það þarf ekki að skoða þetta mjög náið, mikilvægasta atriðið blasir við:
Alþjóðlega auglýsingastofan
Þetta er ekki innlendur skattgreiðandi, sem þýðir að ef ríkið borgar þeim 1000 kr þá eru þar með 1000 kr farnar úr hagkerfinu.
Ef ríkið hefði ráðið Íslenskt fyrirtæki, segjum á 1500 kr, þá hefðu 17-25%, eða 255-375 krónur strax komið til baka vegna matarskattsins. Bara einn skattur. Og restin hefði að mestu leiti haldist í hagkerfinu.
.... tillaga M&C Saatchi hlaut hæstu einkunn valnefndar af innsendum tilboðum fyrir verkefnið en alls verður 1,5 milljörðum króna varið í það.
Þar fóru 1.500.000.000 kr úr landi.
Íslandsstofa mun sjá um framkvæmdina en forstjóri stofnunarinnar sagðist ekki geta tjáð sig um málið og vísaði á Ríkiskaup.
Innlendir aðilar segja sárt að svo stórt verkefni verði flutt úr landi.
Í alvöru? Ég hissa.
Auk þess kom fram í Morgunblaðinu í dag að M&C Saatchi viðurkenndi bókhaldsmisferli í lok síðasta árs og hefur breska fjármálaráðuneytið hafið rannsókn á fyrirtækinu.
Í svarinu segir enn fremur að lög um opinber innkaup byggi á þeirri forsendu að Ísland er aðili að Evrópska efnahagssvæðinu. Því sé skylt að auglýsa útboð þar ef fjárhæðir fari yfir ákveðin viðmiðunarmörk.
Hvar stendur að þeir þurfi að taka tilboum allstaðar frá?
Með þessum hætti hafa íslensk fyrirtæki einnig aðgang að útboðum um alla Evrópu.
Grunar mig nú að þau séu ekki samkeponishæf af skattaástæðum. Annað sem gæti þvælst fyrir þeim er að ég hef tekið eftir því að sumir útlendingar kunna að reikna.
Bölvaðir skúrkarnir.
Þetta fyrirkomulag er til að auka hagvöxt á Evrópska efnahagssvæðinu
Ja, 1500 milljónir eru kannski ekki mikill peningur fyrir Evrópu, en það er þó eitthvað.
og draga úr spillingu, segir í svari Ríkiskaupa.
Já... : "kom fram í Morgunblaðinu í dag að M&C Saatchi viðurkenndi bókhaldsmisferli í lok síðasta árs og hefur breska fjármálaráðuneytið hafið rannsókn á fyrirtækinu."
Þið segið nokkuð.
![]() |
Frétt um bókhaldsmisferli breytti engu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.5.2020 | 11:05
Hvert á fólk þá að fara?
Í bréfi sem Endurvinnslan hefur fengið frá Sorpu, sem hefur haft umsjón með gámunum, segir m.a. að þarna hafi verið ,langvarandi óþrif og misnotkun á stöðinni.
Sjáið myndina:
Gler gámurinn er fullur. Greinilega ekki tæmdur nógu oft. Umhverfis eru svo fleiri glerflöskur. Svo þarna er fólk greinilega allt af vija gert að flokka þetta, en Sorpa hefur ekki undan, af einhverjum orsökum.
Þetta sýnist mér vera aðal ástæðan fyrir óþrifunum.
,,Nú er hins vegar ljóst að þeir sem nýttu gámana þarna þurfa að leita annað vegna þess að sumir hafa misnotað þessa aðstöðu, segir Helgi í Morgunblaðinu í dag.
Hvað annað voru menn að nota gámana en að henda í þá rusli?
Spyr sá sem ekki veit.
Þegar ruslatunnurnar verða fjarlægðar, verður þá ekki bara meiri sóðaskapur?
![]() |
Fjarlægja grenndargáma vegna óþrifa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |