30.12.2018 | 00:03
Þetta er að minnsta kosti 2% verðbólga
Ofaná þessa venjulegu 2-3% verðbólgu sem er alltaf.
Sem þýðir hækkun á verðtryggðum lánum, sem eru ennþá hlutur sem er til.
Einhver smá hækkun á persónuafsætti dekkar þetta ekkert. Það þarf að lækka tekjuskattinn mikið. Niður í 0%, ideal, en það verður aldrei.
Sjá, fyrir fólk með barn, þá er kolagjaldið alveg að éta það up, og meira til. Fólk með börn er semsagt að tapa á þessu. Fólk sem á engin börn tapar líka, meira, en það þarf ekkert að fara í húsdýragarðinn svosem.
Allur þessi peningur fer svo í ekkert.
Þeir geta gert ekkert rétt. 2009-2013 flashback. Vondir tímar framundan. Manngerð, heimatilbúin efnahagslægð. Í langan tíma.
Ef við svo lítum til útlanda, þá gengur vel í Póllandi, Rússlandi, Bandaríkjum Norður Ameríku, Kína... og allt er að fara á flug í Brazilíu og Chile, jafnvel Kólumbíu. Nokkur lönd í Afríku eru að pluma sig líka.
Ekki gengur svo mjög vel í Frakklandi, þaðan sem við fáum allar okkar heimskulegustu hugmyndir. Þar er allt í uppþotum ennþá. Það er það sem okkur vantar. Uppþot. Myndi kóróna þetta.
Allt gengur vel, nema í Evrópu.
Áfengi, tóbak og eldsneyti hækka í verði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |