Á meðan, í USA:

https://www.breitbart.com/economy/2019/01/04/the-u-s-economy-added-312000-jobs-in-december/

DD vill ekki hækka verðið til að eiga fyrir kostnaði, og taka þannig þátt í verðbólgu.  Ríkið eykur á verðbólguna, gerir fyrirtækjum erfitt fyrir að halda fólki í vinnu, og reynir að skapa atvinnuleysi.  Hyggst svo halda laununu lágum með innflutningi vinnuafls frá láglaunasvæðum.

Á meðan hækka launun í USA, auðveldara er að athafna sig þar með hverskyns rekstur og atvinnuleysi minnkar.

Hvers vegna tökum við ekki USA okkur til fyrirmyndar? Vegna þess að gaurinn sem rekur það batterí er appelsínugulur? 


mbl.is Dunkin' Donuts á Íslandi lokað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef fyrsta skattþrep yrði 60%...

Þá yrðu lágmarkslaun að hækka í samræmi við það.

Nú eru þau 300.000, og skatturinn er 37% - útborgað: 189.000

Ef skatturnn færi uppí 60%, þá yrðu launin að hækka í 472.000, bara til að halda í við.

En þar sem það er jú verðbólga, og hún há, og hún hefur staðið yfir lengi, og laun hafa ekki haldið í við hana, þá er réttast að krafan vrði 40% ofaná það, eða 661.000 á mánuði, lágmark.

Þið viðtið, í samræmi við hækkun ákveðinna opinberra starfsmanna.

660.000 í lágmarkslaun myndi bæði dekka 60% skatt og verðbólgu allavega næsta árið.

Nema ríkið sjái sér fært að gera eitthvað af viti, eins og að koma til móts við launafólk með því að lækka tekjuskattinn, eða fella niður eitthvað af þeim sköttum sem fyri eru.  T.d kolefnisgjaldið.

Á móti gæti ríkið til dæmis bara lokað einhverjum af hinum fjölmörgu stofnunum sem það rekur.  Af nógu er að taka.  Það þarf enginn að segja mér að meira en 1/4 vinnandi manna eigi að vera ríkisstafsmenn.


mbl.is Fyrsta skattþrep yrði 60,54%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. janúar 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband