16.11.2019 | 18:21
Það fer örugglega um alla sem stunda viðskifti í Afríku
... nema...
Allir einbeiti sér að Samherja. Sem gæti alveg verið. Vegna þess sem Ragnar hér bendir á: spilling.
Það er ekki eins og RÚV hafi ekki áður vaðið í Samherja, alveg að ósekju, seinast með Seðlabankann. Eins og frægt er orðið.
Eins lögðu þeir í rúst viðskifti veitingahúss á Akureyri, líka alveg uppúr þurru. Nýlega.
Það er eitthvað Kafka-ískt við þetta. Þeir eru sekir, um eitthvað, en hvað?
Gleymdi Samherji að múta rétta fólkinu eða hvað? Spyr ég, reiknandi með landlægri spillingu, auðvitað.
Það er líklega málið. Einhver hefur ekki fengið múturnar sínar. Eða Samherji hefur móðgað einhvern. Annars kemur líklega aldrei í ljós hvað er á bakvið þetta, en ég er viss um að það hefur ekkert með "samfélagsleg gildi" að gera.
Samfélagslegum gildum okkar er ógnað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.11.2019 | 03:44
Um Morales í Bólivíu
Af RT: https://www.rt.com/news/473586-morales-bolivia-elections-us-guantanamo/
Q: "Morales, who resigned under pressure from top military officials after weeks of opposition protests, said that he does not mind if the fresh presidential elections are held without him on the ballot."
"Morales, who was accused of election fraud by opposition unhappy with the results of October presidential vote and was eventually forced into political asylum in Mexico, said he just wanted to return to his home country as soon as his resignation is approved by the legislature.
That might not be that easy for him, though, as Anez told journalists that although Morales is free to return, he would still face inquiry over alleged electoral fraud in addition to many allegations of corruption."
Úr annarri átt, af Breitbart: https://www.breitbart.com/latin-america/2019/11/14/argentine-communist-terrorist-identified-among-bolivia-protesters/
Q: "Morales was president of Bolivia for 13 years when he resigned on Sunday, following the revelation by the Organization of American States (OAS) of widespread electoral fraud in the October 20 election that he claimed to handily win. It was an election Morales had no constitutional right to participate in, given the term limits in the Bolivian constitution. To override this limitation, Morales first attempted to pass a national referendum ending term limits in 2016, which the people rejected. A year later, he forced the nations constitutional court to declare he had a human right to be on the ballot."
... já.
Ísland er land fyrir hann, sýnist mér. Hann hefði komist upp með þetta allt hér.
16.11.2019 | 03:33
Þessir hjólríðandi skrattar
Q: "Árni Friðriksson formaður Landssamtaka hjólreiðamanna ræddi málið við mbl.is í upphafi mánaðar og sagði að hann teldi vænlegt að hækka upphæðirnar sem eru í spilinu hvað reiðhjól varðar um hundrað þúsund krónur, þannig að venjuleg reiðhjól yrðu undanþegin virðisaukaskatti upp að 200.000 krónum og rafmagnshjól mættu kosta 500.000 kr. út úr búð, áður en virðisaukaskattur yrði greiddur af vörunni." (sic)
Hjólríðandi menn vilja vera undanþegnir virðisukaskatti.
Fokk þeir. Þeir nota vegina, þeir skulu borga líka.
Reyndar, verandi óttalegir leiðindapésar, þá ættu þeir að borga kolefnisgjald líka, og sykurskatt af þessum hjólum sínum.
Að vera að gera kerfið flókið og viðhalda kerfi sem skemmir fyrir okkur öllum... svei þeim.
Reiðhjólafólk leggur til meiri skattaafslátt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |