4.6.2019 | 19:13
Tími er peningar
Það tekur enga stund að rúnta einhverja 250 km, sem er það sem beztu rafbílar komast núna. Að því loknu er einhver bílaleiga ekkert í stakk búin að tapa 5 klst leigutekjum í einhverja bið eftir hleðzlu.
Fyrir mann í venjulegri vinnu sem er samt svo óvenjulegur að ferðast alrei út fyrir borgarmörkin virkar alveg að vera á rafbíl.
Einhverjar hleðzlustöðvar myndu henta þeim kauða vel.
Annars nenna fæstir að hanga í fleiri klukkutíma eftir hleðzlu. Þetta þarf að laga einhvernvegin. Á einhvern hátt sem veldur ekki eldsvoða, eins og hjá Tesla.
Það gengur illa að halda þeim í leigu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.6.2019 | 15:20
Rekum bara Ara Trausta
Sko:
Þingfararkaup alþingismanna er frá 30. október 2016: Kr. 1.101.194
*12 = 13.214.328
Ef við leggjum þingsæti hans alveg niður sparast annar kostnaður líka, sem er mismunandi eftir hver situr í sætinu. Þetta er tíunað hér: https://www.althingi.is/thingmenn/starfskjor-althingismanna/starfskjor-thingmanna-yfirlit/
Þannig spörum við *meira en* 13 milljónir á ári, sem geta nýst í annað. Eins og til dæmis í að ráða handrukkara til þess að fótbrjóta þá sem koma með fleiri tillögur um "loftslagsgjöld" og annað í þeim dúr.
Leggur til flatt loftslagsgjald | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |