Þetta er ekki góð auglýsing fyrir femínismann

Allt sem hér hefur átt sér stað er beint eftir steríótýpunni sem femínistar ættu helst að reyna að losna undan: að femínistar séu púrítanskt lið sem er ekki til eftirbreytni.  Nákvæmlega sama liðið og reið húsum í Lúteskunni.

Tilvitnun: 

"Jafnvel enn merkilegra er að þetta litla norræna land er fyrsta landið í heiminum sem bannar kjöltudans út frá femínískum sjónarmiðum en ekki trúarlegum.“

Rangt.  Hér á landi er femínisminn trú.  Ég get vitnað í því skyni í fréttablaðið hér um daginn, þar sem var löng grein eftir einhvern náunga í "kynjafræði," sem eftir lestur greinar hans er helst að skilja að sé trúflokkur af einhverju tagi.  Það er algjört pain fyrir hvern þann sem hefur einhvern skilning á sálfræði að lesa þá grein.

Ekki vel til þess fallið að ýta undir neina virðingu, þetta.  Nei.  Fólk mun sjá okkur sem víti til varnaðar.


mbl.is Ísland höfuðstaður femínismans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband