24.9.2010 | 13:42
Og hverju veldur það?
Hærri fjármagnstekjuskattur:
Minni ástæða til að geyma fjármagn í bönkum. Sem þýðir að bankar muni hafa minna haldbært fé. (Að öllu eðlilegu, en hér er og efur náttúrlega aldrei neitt verið eðlilegt.)
Hærri tekjuskattur lögaðila:
Tekjurýrnun lögaðila. Fyrir þá sem geta verður enn meira freistandi að vinna svart.
Mér er ekki ljóst hvað auðlegðarskattur er, en grunar að það leggist á láglaunastéttir. Það væri efitr öllu.
Hærri vörugjöld á áfengi:
Bruggið er byrjað aftur á fullu. Það mun aukast, sem þýðir að ríkið mun verða fyrir meiri búsyfjum.
Hærri vörugjöld á tóbak: Því er mestmegnis smyglað inn hvort eð er.
Hærra kolefnisgjald á eldsneyti:
Meiri verðbólga. Mjólkin verður dýrari.
Tekinn verði upp skattur á fjármálaþjónustu:
Visa verður dýrari.
Þetta miðar allt að lífskjararýrnun allra. Nema þeirra sem brugga landa og smygla tóbaki. Þetta verður gósentíð fyrir þá.
Tillögur um hærri skatta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
Svona fer þegar menn kunna ekki á Excel og reikna línuleg skil með talnagrind og reglustriku!
Óskar Guðmundsson, 24.9.2010 kl. 14:37
Alveg rétt, brugg, smygl og annað sem var vinsælt hér áður fyrr mun aftur ná sér á strik.
Auðlegðarskattur er „dulnefni“ yfir eignaskatt, fyndið sem það nú er. PR gúrúum VG hefur þótt það hljóma betur :-)
Gunnlaugur Ásgeirsson, 24.9.2010 kl. 14:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.