27.12.2010 | 22:52
Kaupið mína bók!
Tilvitnun:
"Davíð sagði að hægt væri að skipta bókum allt árið, en í janúar hæfust útsölur og því væri betra fyrir fólk að skipta á bókum áður en þær hæfust ef fólk vildi fá fullt verð fyrir bækurnar."
Mín bók fer ekki á útsölu, því hún er á algjöru botn-verði:
http://www.eymundsson.is/pages/269/itemID/AHA708025/ItemCategoryID/16/ItemSubCategoryID/1627
Ég er búinn að sjá það, að ef bók kostar eitthvað meira en 2000 kr, þá eruði að borga fyrir auglýsingarnar. Vitiði hvað kostar að auglýsa í blöðum? Heil síða er nánast prentkostnaður.
***
Það að metsölubókum sé skilað mest eru engin vísindi. Ég er viss um að sumir eru með meira en tvö eintök. Gaman væri að vita hver á flest eintök af því sama.
Á einhver fimm eintök af nýjustu bók Arnalds?
Gæti skeð.
Metsölubókunum oftast skilað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
Um hvað er þín bók? Sé bara titilinn og mynd af hvítum kassa.
Katla Björg Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 28.12.2010 kl. 06:08
Já, ég þarf að muna eftir því einhvern daginn að senda þeim mynd og einhvern texta.
Þetta er um nokkra krakka sem eru að fikta í galdrabók, og galdra sig óvart í aðra vídd. Svona eins og C.S Lewis, nema með meiri Alistair MacLean fílíng.
Ásgrímur Hartmannsson, 28.12.2010 kl. 20:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.