2.12.2011 | 19:02
Vopnalög á íslandi eru tóm steypa
Af hverju er til eitthvað sem heitir "ólöglegur hnífur?"
Hver er sagan á bakvið það? Hver var það sem ákvað að þetta mjög svo mikilvæga verkfæri mætti bara vera svona og svona, en ekki á hinn veginn eða þann?
Það er mér hulið.
Það eina sem er hugsanlega meiri vitleysa er 73 grein stórnarskrárinnar. Þið þekkið þann part:
"Ritskoðun og aðrar sambærilegar tálmanir á tjáningarfrelsi má aldrei í lög leiða. Tjáningarfrelsi má aðeins setja skorður með lögum í þágu allsherjarreglu..." osfrv.
Annað merkilegt er þarna:
"Þó er fullvíst að ein þeirra, mjög öflug og alsjálfvirk haglabyssa, er ekki skráð."
Ekki veit ég nú með það - á myndinni er bara ein haglabyssa, og hvorki er hún mjög öflug né alsjálfvirk. Þessi á myndinni er reyndar mjög líklega skráð. Þessi týpa var seld hér á landi... í Hlað, held ég.
En það er svolítið síðan. Þetta voru meira svona "novelty item."
Vopnabúr fannst í Breiðholti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
Í alvöru? Var þessi Saiga 12 seld hérna á Íslandi? Ég á nú erfitt með að trúa því.
Gummi (IP-tala skráð) 3.12.2011 kl. 08:15
Ég er sammála með að knífalögin eru bull. En ertu virkilega á móti málfrelsi?
Óli (IP-tala skráð) 3.12.2011 kl. 13:09
Gummi: já. Kostaði ca 50.000 kall.
Óli: ha?
Ásgrímur Hartmannsson, 4.12.2011 kl. 14:53
"Það eina sem er hugsanlega meiri vitleysa er 73 grein stórnarskrárinnar. Þið þekkið þann part:
"Ritskoðun og aðrar sambærilegar tálmanir á tjáningarfrelsi má aldrei í lög leiða. Tjáningarfrelsi má aðeins setja skorður með lögum í þágu allsherjarreglu..." osfrv."
Ertu ekki að segja að þetta sé vitleysa? Að tryggja tjáningarfrelsi?
Óli (IP-tala skráð) 10.12.2011 kl. 16:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.