Þetta SOPA & PIPA dót er merkilega lengi að berast til Íslenskra fjölmiðla

eins og það er nú mikilvægt fyrirbæri sem mun breyta ásýnd internetsins - og heimsins - til hins verra ef það kemst í gegn.

Ef ekki væri fyrir útlendar fréttasíður vissi maður ekkert sem er að ske í heiminum.


mbl.is Stefnt að lokun Wikipediu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það væri gaman að sjá Google og Bing taka sig saman og gera slíkt hið sama ;-)

Björn (IP-tala skráð) 14.1.2012 kl. 10:24

2 identicon

Bing mun auðvitað aldrei verða lokað þar sem Microsoft menn eru nú varla að mótmæla lögunum. Og þar með lokar ekki Google því ef þeir gerðu það myndu þeir missa mjög marga notendur yfir í að nota Bing.

Axel (IP-tala skráð) 14.1.2012 kl. 17:36

3 Smámynd: Ragnar Kristján Gestsson

En þetta er náttúrulega alveg rétt hjá þér Ásgrímur, fréttamennska hérlendis virðist einskorðast við þýðingar á reuter og fjölmörg málefni þögguð. En hérlendir blaðamenn sem ætla mætti að byggðu sína afkomu á málfrelsi átta sig ekki á alvarleika laganna sem USA samþykkti núna um áramótin og þegja þunnu hljóði.

Ragnar Kristján Gestsson, 16.1.2012 kl. 07:49

4 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Hér yrði þetta samþykkt hiklaust.

Málið er, að þessi lög bæði (+önnur sem er minna talað um, jafnvel í erlendum miðlum) eiga að stuðla að því að gera nýjum aðilum í listageiranum erfitt fyrir að komast að.

Baráttan er stöðug.

Ásgrímur Hartmannsson, 16.1.2012 kl. 21:32

5 Smámynd: Garðar Valur Hallfreðsson

Það var alltaf spurning um tíma hvenær stjórnmálamenn myndu pissa utan í hagsmunaseggi.  Það þrengir stöðugt að frelsi á netinu og almenningur í raun tekur ekki eftir því upp til hópa, hlutirnir eru að gerast fyrir framan nefið á fólki en engin "nennir" að spá í því.

Einn daginn eftir X mörg ár munu menn einvörðungu sækja heimasíður sem eru "samþykktar"  :)

Þetta er að gerast æ oftar í hugbúnaðargeiranum eins og t.d. varðandi "Secure Boot" frá Microsoft þar sem framleiðendum á móðurborðum er nánast gert að framleiða móðurborð með þeim fídus:
http://msdn.microsoft.com/en-us/library/windows/hardware/hh748200.aspx

Ég mæli með að menn skoði "sceure boot" á gúgglinu.

Ég gæti þess vegna haldið áfram að lasta hugbúnaðargeirann en svo virðist sem Microsoft sé að falla í sömu gryfju og Apple gerði á sínum tíma en það er að útfæra "Kill Switch" í stýrikerfi sín.  Það þýðir að fyritækin geta án þinnar vitneskju fjarlægt forrit úr tölvu þinni, já þú heyrðir rétt, þeir geta "uninstall"-að forriti úr tölvunni þinni án þinnar vitneskju!
http://www.theinquirer.net/inquirer/news/2131525/microsoft-kill-switch-windows-app-store

Gott fólk, heimurinn er alltaf að breytast og internetið hægt og sígandi að detta í hendur hagsmunaaðila, því miður.

Garðar Valur Hallfreðsson, 17.1.2012 kl. 08:35

6 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Góð auglýsing fyrir linux, þetta.

Ásgrímur Hartmannsson, 17.1.2012 kl. 20:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband