13.2.2012 | 14:10
Ég hef lengi velt fyrr mér...
hvernig dópistar nást undir stýri. Hvernig lýsir þetta sér?
Brennivín er alltaf eins: ökumaður virkar sofandi. Hittir ekkert nauðsynlega á veginn, osfrv.
En dóp? Það eru nokkrar gerðir af því:
Amfetamín/ritalín/kókaín osfrv: hvernig sést það? Mér dettur helst í hug einstaklega glannaleg hegðun.
Maríúana/kannabis etc...: mjög hægur akstur (hvað þeir ætla út að keyra veit ég ekki svo gjörla.)
Annað: pass.
Eða: löggan er með númerin á skrá, og stoppar þessa gaura bara, vitandi nákvæmlega við hverju er að búast. Það er ekkert ólíklegt.
Fleiri undir áhrifum fíkniefna en áfengis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
Lögreglan er með lista og áreitir góðkunningja sína.
Þú þarft svo ekki að vera undir áhrifum eins fáránlega og það hljómar, fíkniefnaprófin ná margar vikur aftur í tímann. Það er verið að lauma inn aukarefsingu fyrir neysluna sjálfa.
Geir Jónsson (IP-tala skráð) 13.2.2012 kl. 14:37
Það er mín helsta kenning. Löggunni sé hreinlega bara illa við þessa gaura - sem er fullkomlega skiljanlegt.
Ásgrímur Hartmannsson, 13.2.2012 kl. 22:29
Finnst þér eðlilegt að lögreglan áreiti menn sem henni er illa við?
Ertu í alvörunni svo einfaldur að trúa því að allt fólk í neyslu sé slæmt fólk?
Finnst þér í alvörunni eðlilegt að refsa fólki fyrir "vímuakstur" þó að það hafi ekki verið undir áhrifum?
Geir Jónsson (IP-tala skráð) 15.2.2012 kl. 11:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.