Hið mjög svo ólýðræðislega íslenska lýðræði

Það er eins gott, held ég, að næsta stjórn móðgi ekki mikið þessi 16%.
mbl.is 16% kusu flokk sem ekki fær mann kjörinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég var einn af þeim sem kaus flokk, sem spáð var að kæmist ekki inn, enda vildi ég frekar drukkna í rotþró eftir að hafa verið barinn með gaddakylfum heldur en að kjósa fimmflokkinn. Ég kaus eftir minni eigin sannfæringu. Þannig að ef næsta ríkisstjórn klúðrar öllu, þá er mín samvizka hrein (og ég ber enga ábyrgð á uppbótaratkvæðum)

Ég held að það hafi verið mistök hjá litlu framboðunum að halda að þeir gætu komið fram kl. kortér í kosningar og halda að þeir gætu fengið mann inn.  Það tekur amk. ár að vinna sér inn traust kjósenda. Það var við því búizt, að BF fengi atkvæðin sem Samfylkingin tapaði, en hitt er umhugsarvert að litlu vinstriframboðin komust ekki inn þrátt fyrir mikið tap hjá VG. Það sýnir, að þjóðin vill helzt ekki kommúnistaflokka á Alþingi, hvað þá í stjórn. Þeirra tími kom og fór og kemur sennilega aldrei aftur.

Pétur D. (IP-tala skráð) 28.4.2013 kl. 02:41

2 identicon

Ég setti viljandi inn nokkrar málfræði- og ritvillur í síðustu athugasemd.

Pétur D. (IP-tala skráð) 28.4.2013 kl. 02:45

3 identicon

Ég er hlynntur því að lágmarksprósentan til að ná manni inn á þing hér verði lækkuð úr 5% niður í 2% eins og er í Danmörku. Í Þýzkalandi er þessi prósenta 5 eins og á Íslandi enda eru Þýzkaland og Ísland á sama róli hvað varðar skort á lýðræði.

Pétur D. (IP-tala skráð) 28.4.2013 kl. 16:57

4 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Það er ágætt að þú ert saklaus af þingi. Þá er þér við bjargandi víst.

Hlutföllin eru eitthvað að breytast tek ég eftir - ég held vegna þess að gömlu stuðningsmennirnir eru að deyja.

Þannig breytist allt.

Ég er ekki nógu vel að mér í málfræði til þess að taka eftir smávægilegum málvillum - eins og þeim sem ég frem oft og iðulega.

Það eru stóru málfræðilegu hryðjuverkin sem ég verð var við.

Ásgrímur Hartmannsson, 28.4.2013 kl. 17:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband