Aðeins of augljóst

Ýmis samtök löggæslumanna hafa skrifað bréf þar sem þau lýsa yfir þungum áhyggjum sínum yfir ákvörðun Erics Holders, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, að setja sig ekki upp á móti lagasetningu í ríkjunum Colorado og Washington sem heimilar notkun kannabisefna í skemmtanaskyni.

Og af hverju ætli það sé?  Það er nefnilega útskýrt seinna:

Lögregluembætti í Bandaríkjunum eru að miklu leyti fjárhagslega háð stríðinu gegn fíkniefnum. Miklar fjárveitingar frá alríkisstjórninni eru tengdar tölfræðilegum árangri embættanna í stríðinu, auk þess sem embættin mega gera upptæk og selja ýmis verðmæti sem nást af einstaklingum sem eru taldir tengjast sölu eða dreifingu fíkniefna, óháð því hvort viðkomandi einstaklingar séu á einhverjum tímapunkti sakfelldir fyrir brot sín. 

Money makes the world go around. 

Vefurinn Huffington Post greinir frá þessu, og bendir á að þetta sama löggæslulið hafi undanfarna þrjá áratugi vígvæðst mjög og barist með litlum sem engum árangri í stríði gegn fíkniefnum. 

Þetta er miklu verra en þið haldið.  Lögreglan er farin að verða, nei, orðin, stór plága.  Miklu meira vandamál en einhverjir fáeinir dópistar.  Eins óþolandi og sumir þeirra geta nú verið.


mbl.is Vara við lögleiðingu kannabisefna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband