Skamm skamm. Þeir eiga að murka lífið úr fólki með viðurkenndum vopnum!

Vita þeir það ekki? 

Við öll fjöldamorð skal einungis brúka alþjóðlega viðurkennd drápstól, CE merkt og allt.  Eins og fosfórsprengjur, þermít eða MK 77 bensínsprengjur.

Einnig þykir fjölskilduvæn skemmtun að myrða fólk með garðáhöldum af öllu tagi, svo og smíðaáhöldum - þó slíkt tíðkist einna helst eftir að styrrjaldir hafa staðið yfir mjög lengi og sé oft gert heldur tímafrekt, enda teljast slík morð til föndurs.

Vinsælt og alþjóðlega viðurkennt er einnig að þræla fólki út, svelta það eða reka það út á gaddinn - ef aðgangur er að slíku.

En það ná ekki henda í það taugagasi!  Slíkt kallar á meira stríð!


mbl.is Sýrlenski herinn beitti taugagasi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband