Þeir ná þessu - en áhugavert samt

Svona lagað gæti aldrei átt sér stað hér á landi.  Þó það væri óskandi.  Hugsið ykkur hve miklum fjármunum er sóað í ríkisstofnanir á hverjum degi, stofnanir sem gera ekkert.  Og stofnanir sem gera eitthvað, en eru ofmannaðar.

Hafiði líka tekið eftir, að eftir því sem stofnanirnar eru stærri og fjölmennari, þeim mun svifaseinni eru þær?

Ég er hreint ekkert viss um að almenningur í USA taki eftir því þó ríkisstofnanirnar fái ekkert borgað.  Nema þá að fyrir flesta má búast við að lífið verði eitthvað einfaldara.

Ég er á því að þetta sé bara jákvætt.  Því lengur sem er slökkt á öllu, því betra.  Þeir munu sjá að þeir þurfa ekkert allar þessar stofnanir sínar - ef þeir eru heppnir, og þá verða þær lagðar niður.

En það eru draumórar.  Það verður ekkert af neinni stöðvun. 


mbl.is Útlitið ekki bjart í Washington
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það finna allir fyrir því að fá ekki launin sín greidd.Það lifir enginn á loftinu einu.

Sigurdur V.Gudjonsson (IP-tala skráð) 30.9.2013 kl. 03:39

2 identicon

Ég hef miklar áhuggjur af þessu, ég verð að segja það.

Hvað gerist ef NSA lokar? Þá fer allt í vitleysu og enginn fylgist með mér á meðan.

Áhyggjufullur (IP-tala skráð) 30.9.2013 kl. 04:18

3 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Sigurður: þeir fá borguð uppsöfnuð laun þegar stöðvuninni líkur.

Ásgrímur Hartmannsson, 30.9.2013 kl. 20:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband