Þessi hefur einn andstyggilegan galla

Nútímaútgáfa Lada Sport er Dacia Duster,

Lada og "nútími" eiga ekki heima í sömu setningunni.  Og það er enn hægt að fá nýja Lödu.  Uhm... "nýja."  

jepplingur sem smíðaður er á einföldum grunni en með hagkvæmni að sjónarmiði og með gott fjórhjóladrif.

1: Hver er munurinn á jeppa og jeppling?  Jeppi er bara bíll með drif á öllum og háu og lágu drifi.

2: hvað er "gott fjórhjóladrif," og hvernig er það frábrugðið "vondu fjórhjóladrifi?" 

Renault-Dacia frumsýndi fyrstu andlitslyftingu Duster-jepplingsins

Bara andlitslyftinguna.

Bíllinn kom fyrst á markað árið 2010 og hefur nú fengið uppfærslu á útliti og búnaði þótt grunnsmíðin haldi sér.

Hefur semsagt verið endurbættur aðeins. 

Það er strax augljóst að um nokkuð betur búinn bíl er að ræða í nýja bílnum.

Það er poki fullur af núðlum í mínum bíl. 

aðgerðarstýri,

Nauðsynlegt í fiskvinnslunni. 

Eftir sem áður er flautan þó á kjánalegum stað, á enda stefnuljósastangarinnar,

Höfðar til þeirra sem hafa átt Range Rover. 

Útvarpið er frekar einfalt í notkun en þó ætti frekar að nota snúningstakkann fyrir hljóðstyrk en stöðvarval eins og í þessum.

Eru ekki tveir takkar? 

Það sem vekur athygli manns strax þegar byrjað er að aka bílnum er hversu óeðlilega lág drifhlutföllin eru í honum.

Þetta er jeppi.  Þetta á að vera svona.

Þetta er miklu verra í Toyota Auris, sem er með svo stutt á milli gíra að maður fær harðsperrur af að aka honum innanbæjar. 

...enda er hámarkshraðinn ekki nema 168 km á klst.

Það er 70 km/h hraðar en minn bíll kemst. 

Í þjóðvegaakstri í sjötta gír er bíllinn í 2.000 snúningum á 90 km hraða, sem er óvenjuhátt.

Hverju ekur þú venjulega? 

Munaði um að geta læst drifinu milli ása í gljúpum sandinum.

Læst drif?  Hættu að kalla þetta farartæki "jeppling." 

1,5 lítra dísilvélin er nokkuð togmikil miðað við stærð

Dísel?  Fuck this.  Kemur ekki til greina.

Grunnverð Dacia Duster upp á 3.990.000 kr. er eiginlega frekar gott þegar horft er á bíla í sama stærðarflokki.

Lada Sport kostar 2.7 ný, og er með BENSÍN-vél.


mbl.is Betur búinn og laglegri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband