28.12.2014 | 02:49
Það borgar sig stundum að eiga riffil
Þetta eru mestmegnis almennir borgarar, af þeirri gerð sem almenningur á Íslandi trúir ekki að geti barist, sem eru að hrekja ISIS í burtu.
Kúrdar hafa hins vegar komið í veg fyrir studdir af loftárásum Bandaríkjamanna og fleiri ríkja og liðsauka frá Kúrdum í Írak.
Þær hjálpa mikið. Þær aðstoða mest við að losa YPG við fallbyssur og skriðdreka sem þeir þurfa ekki að herji á sig.
Annars hafa ISIS sýnt í verki að þeir eru sérþjálfaðir í að kunna ekkert að fara með skriðdreka.
Sönnunargagn A: https://www.youtube.com/watch?v=__Nc77Z0Sqs&feature=share
Það hefði verið fínt ef þeir hefði ekki gert þetta með hangandi hendi í byrjun. Á hinn bóginn virtust þeir ekki gera sér grein fyrir hversu fámennir og illa bínur YPG gaurarnir voru - og eru enn.
Hér eru myndir af þeim: http://www.newsweek.com/2014/10/24/kobane-diary-four-days-inside-city-keeping-incredible-and-unprecedented-resistance-277509.html
Rúmlega eitt þúsund manns hafa til þessa látið lífið í átökum í Kobane. Flestir úr röðum vígamanna Ríkis íslams.
Athugum fáanlegar heimildir (wiki):
YPG & Co hafa misst 500+ (kannski 6-700.)
ISIS hafa misst ca 1000+ í bardögum við YPG (allt að 2000), og 600+ í loftárásum (hgsanlega fleiri en 1000 núna.)
Þrautþjálfaðir bardagamenn, ha? Með óendanlegt fjármagn, ha?
Jæja...
Kúrdar sækja fram í Kobane | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.