Þetta er alltaf merkileg pæling

Hér á íslandi hefur borið á því líka að eldri borgarar sjáist aka um á hallærislegustu týpum af smábíl sem hægt er að finna.

Í USA aka eldri borgarar um á Cadillac eða Buick.  Vegna þess að þeir hafa safnað.  Vegna þess að það er hægt þar.

Hér aka unglingar um á minna hallærislegum smábílum, einhverju sem er áreiðanlegt og á að eyða litlu, eða einhversskonar ódýrum sportbíl.  Stundum sambland af báðu.

Í USA aka þeir um á gömlum Ford Taurus.

Það vill brenna við að elstu og lélegustu bílarnir eru í höndum yngsta fólksins.  Vegna peningaskorts.

Kvenfólk báðu megin Atlantshafsins er hrifið af jeppum á grind.  Landcruiser, Exlporer, Pajero... svoleiðis.  Með smá monný sést það kannski á Lexus jeppling.  Lexus aka venjulega bara þeir sem hafa efni á því.  (Það eru samt merkilega ódýrir bílar í rekstri... af einhverjum ástæðum.)

Sjáirðu bíl sem lítur út fyrir að vera samsettur úr 3-8 öðrum bílum, þá er líklegt að þar sé bifvélavirki á ferð.

Stórum Subaru er oft ekið af mjög praktískt þenkjandi mönnum.  Litlum Subaru er hinsvegar ekið af rugluðum sérvitringum.  Spjallaðu við einn, og þú fattar hvað ég meina.

Þegar hægt var að fá lán án þess að hafa tekjur, þá leituðu allskyns geðveikir menn í BMW.  Það hefur breyst.

Benz eigendur hafa átt til að vera rólegri.

Jeep Cherokee eigendur vita hluti sem þú veist ekki.

Fólk á nýjum japönskum bílum er sennilega ekki að spá í þessu.

Alfa Romeo eigendur hugsuðu þetta ekki alla leið.

Óbílandi menn rignir svo á.


mbl.is Eldri kjósa Suzuki og Subaru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband