Þau eru líka bara loforð.

Þau mark­mið sem ríki heims hafa sett sér um að draga úr los­un gróður­húsaloft­teg­unda fram að þessu þýða að hnatt­ræn hlýn­un stefn­ir í 2,7°C

Góðar fréttir, en... byggt á hverju?

Síðan hvenær getur mannkyn stjórnað veðrinu?  Það hefði komið sér vel að vita þetta á 14 öld.

Sam­kvæmt nýrri grein­ingu Clima­te Acti­on Tracker (CAT), sem er tól sem nokkr­ar rann­sókn­ar­stofn­an­ir hafa út­búið til að reikna út áhrif lofts­lagsaðgerða á vænta hlýn­un jarðar,

Nýtt fyrir mér.  Og þeir þykjast geta spáð í veðrið út frá því hve miklum kolum Kínverjar brenna?

nauðsyn­legt sé að halda hlýn­un­inni inn­an við 2°C til þess að forðast verstu af­leiðing­ar lofts­lags­breyt­ing­anna.

Sem væri... að byggilegt yrði á Grænlandi aftur?  Skógar yfriþyrmdu mið-Ameríku... aftur.

Hlýja og gróðursæld, þvílík skelfing.

Til þess að ná mark­miðinu um að tak­marka hlýn­un við 2°C

Þið tönnlist á því eins og það sé eitthvað öruggt.  Hvað eru menn annars að reyna að hóta mér með batnandi tíð?

Bill Hare, einn þeirra sem starfa við CAT, seg­ir við AFP-frétta­stof­una að ólík­legt sé að fram­lög þeirra landa sem enn hafa ekki inn skilað inn mark­miðum sín­um muni verða til þess að 2°C mark­miðið ná­ist.

Kannski veit hann að veðrið stórnast líka af mikilvægari utanaðkomandi þáttum.

Hver fjármagnar þetta allt annars?  Er í alvöru svona mikill peningur í að braska með kolefnislosunarheimildir?

Hlýtur að vera.


mbl.is Fyrirheitin hrökkva ekki til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband