Það hefur þegar verið gert

Hér á landi.

Man vel eftir nammi sem innihélt úrval af pöddum.

Sumir smökkuðu þetta, og þótti sínum hvað.

Ekki vissi ég til að það hefði verið bannað, né gerð hefði verið tilraun til þess að banna þetta.


mbl.is Má markaðsetja skordýr sem mat?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Orkustangirnar sem þú vísar til eru enn á tilraunastigi og ekki komnar á almennan markað, að minnsta kosti ekki hér á landi.

Þetta snýst ekkki um hvort þetta sé bannað, heldur einfaldlega að þarf að liggja fyrir að þetta sé öruggt til neyslu áður en hægt er að fá markaðsleyfi, rétt eins og önnur matvæli sem þurfa að vera vottuð.

Ég held að það ætti ekki að vera neitt sérstakt því til fyrirstöðu að fá þetta vottað sé farið í gegnum rétt ferli með það. Svo getur það auðvitað verið misjafnt eftir tegundum skorkvikinda hvort óhætt sé að neyta þeirra eða ekki. Þú myndir líklega ekki vilja borða eitrað skordýr?

Guðmundur Ásgeirsson, 15.10.2015 kl. 20:22

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Ég veit ekkert um neinar orkustangir, ég er að tala um nammi sem var selt hér stuttlega í kringum, jafnvel fyrir aldamót.

Það var grænt eða gult, svona sleikjó, með voða uggvænlegum pöddum inní.

Annars þá eru pöddur borðaðar hér og þar - mér skilst að engisprettur bragðist líkt og humar.

Og eru ekki bæði humrar og rækjur einskonar pöddur?  Nógu eru nú margar lappir á þeim.

Ásgrímur Hartmannsson, 18.10.2015 kl. 18:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband