25.11.2015 | 18:38
Ritskoðun.
Orð hafa áhrif og eru til alls fyrst. Ef við leyfum niðurlægjandi og meiðandi tón að grassera í umræðunni fer hann að þykja sjálfsagður og vinnur þannig gegn markmiðum okkar um jöfn tækifæri allra til þátttöku í lýðræðislegri umræðu.
Og á þá að banna hann? En lýðræðislegt.
Við þurfum einnig að ræða hvenær getur talist nauðsynlegt að takmarka tjáningarfrelsið
Í þeim tilgangi að gera áróður ríkisins áhrifaríkari? Það er oftast tilgangurinn.
Fjölmiðlar endurspegla ekki raunveruleikann
Neibb. Lestu bara MBL, það er hér fyrir framan þig. Ekki beint í tengzlum við veruleikann, er það? En svo versnar það bara... svo er Visisr, og Pressan...
Fjölmiðlar gegna hér lykilhlutverki. Þeir eiga að endurspegla fjölbreytileika samfélagsins, sagði Eygló
Ég hef fjölmiðla stundum grunaða um að vera með svona ethnic-krakka með sér til að nota í hver skifti sem þeir sýna myndir frá skóla-samkomum. Gæti verið rangt, en samt...
Og merkilegt nokk, ég hef ástæðu til þess að ætla að ég sé ekki kaldhæðnasti maðurinn á svæðinu.
Kynjuð og stöðluð framsetning um konur og karla og hlutverk
... ha? Gæti einhver þýtt þetta á íslensku?
Ungt fólk virðist í mörgum tilfellum verða áþreifanlega vart við ójafnrétti í sínu lífi
Þið verðir bara að sætta ykkur við ójafnrétti, það er allt hluti af því að búa í samfélagi, lýðræðisleg samfélög leyfa ekki eitt, einræðsissamfélög leyfa ekki annað. Þannig er það bara.
Allt ykkur sjálfum að kenna. Og þið munuð viðhalda því, og líka það.
Smá ritskoðun mun ekki gera annað en að auka á misréttið.
Ræða þarf takmörkun tjáningarfrelsis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
Þú rekur fjömiðil sem kallast bloggsíða.
Þín skrif á þessa bloggsíðu eru dæmi um eitthvað sem endurspeglar fjölbreytileika. Enda ertu ekki eins og fólk er flest.
Því eigum við að fagna, og ég tek hatt ofan fyrir þér.
Góðar stundir.
Guðmundur Ásgeirsson, 25.11.2015 kl. 21:35
Ég vil frekar líta á mig sem einmiðil. Enda get ég bara miðlað einu í einu.
Mig langaði miklu frekar að vera miðlari, en það fór allt til fjandans hér um árið.
Ásgrímur Hartmannsson, 26.11.2015 kl. 15:50
Góður. ;)
Guðmundur Ásgeirsson, 26.11.2015 kl. 18:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.