3.2.2018 | 13:10
Misjafnt hafast menn að
Í nágrenni Akureyrar ömuðust menn vð því (sér til tjóns) að strengdar vaæru raflínur yfir í næstu virkjun. Á þeim rökum meðan annars að þær væru sjónmengun.
Nú vill einhver gaur smíða helling af vindmillum, sem eru talsvert meira áberandi en einhver raflína.
Akureyringar og nærsveitungar hefðu grætt á því að hafa þennan gaur við stjórn á sínum tíma.
Vegferð til virkjunar vindorku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
Sæll Ásgrímur,
Það er dálítill munur á þessu tvennu. Sem áhugamanni um ljósmyndun fara þessar endalausu línur hér í Bandaríkjunum svolítið í taugarnar á mér og víða er hvergi hægt að komast úr augsýn einhverra lína. Vindmyllur eru yfirleitt mun meira afmarkaðar og í þyrpingum. Þær geta verið leiðindatól þar sem þær eru; bjó í nánu nágrenni við eina í Danmörku í nokkra mánuði, en það er auðveldara að komast í burtu frá þeim heldur en þúsundum kílómetrum af línum. Þar sem stórum, marglína möstrum er komið fyrir í þröngum dölum og fjörðum eins og t.d. Alcoa línan til Reyðarfjarðar, þá verða þetta mjög áberandi mannvirki og setja sterkan svip á umhverfið.
Kveðja,
Arnór Baldvinsson, 4.2.2018 kl. 05:10
Línur er hægt að grafa í jörð.
Það er ekki vitrænt að grafa vindmillur.
Ásgrímur Hartmannsson, 4.2.2018 kl. 11:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.