6.1.2019 | 00:55
Er pólitík í pólitíkinni?
Nei nú dámar mér.
"Dóra Björt Guðjónsdóttir, forseti borgarstjórnar og oddviti Pírata, segir kröfu Hildar Björnsdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, um að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri víki sæti úr þriggja manna hópi sem á að rýna í niðurstöður innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar um braggamálið svonefnda lykta af pólitískri spilamennsku og neitar að taka þátt í leikriti Sjálfstæðisflokksins."
En það er alveg rétt hjá Hildi að fara fram á þetta. Á allan hátt.
"Henni finnst undarlegt að Sjálfstæðisflokkurinn hafi einróma samþykkt skipan hópsins á fundi borgarráðs"
eða:
"Hildur hefur áður sagt að minnihlutinn hafi gert athugasemdir við skipan hópsins strax í upphafi og Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, hefur einnig talað á sömu nótum"
Hvorum skal trúa? Ja, ef við metum vitnin, þá er borgarstjórnarmeirihlutinn núna þekktur af ýmsum glæpum, lygum og yfirhylmingu, en Hildur og Vigdís ekki.
Svo ég held ég trúi frekar Hildi og Vigdísi.
Lykti af pólitískri spilamennsku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
Held ég stndi bara líka með þér, Ásgrímur;-)
Þetta er hið versta mál.
Góðar stundir, með kveðju að sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 6.1.2019 kl. 01:38
Auli þessi Dóra Björt, forseti borgarstjórnar og oddviti Pírata, þrátt fyrir yfirlýsingar flokks hennar um pólitískan heiðarleika, gagnsæi m.m., er hún hér á fullu í pólitískri samtryggingu með fjármálaglæfrum og siðspillingu kattarþvottar-meistarans Dags B.
Jón Valur Jensson, 6.1.2019 kl. 02:23
Það kemur ekkert á óvart að píratar eru alveg jafn spilltir og hinir vinstri flokkarnir, það var alltaf vitað og er þetta enn ein sönnunin. Þessi pírati er hræddur um að tapa þægilegu vel borguðu vinnunni sinni og mun því gera hvað sem er til að halda í stólinn, þetta er klassísk vinstri mennska.
Halldór (IP-tala skráð) 6.1.2019 kl. 11:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.