Kenningin um hnattræna hlýnun af mannavöldum...

Er ekki prófanleg og hefur ekki haft forspárgildi.  Ekki til þessa.

Það er semsagt ekki hægt að sanna eða afsanna þá kenningu, né er hægt að byggja á henni nein vísindi.

Berum þetta saman við flatjarðarkenninguna.  Hún er auð-prófanleg, og ef sönn reyndist hefði víðtækt forspárgildi.

Skemmtilegt til þess að hugsa að merst bull síðari tíma skuli hafa meira tilkall til þess að vera kallað vísindi en kenning sem Íslenska ríkið sver fyrir að sé rétt og beitir fyrir sig sem afsökun fyrir skattheimtu.

Kannski verpur næst settur á einskonar flatjarðar-skattur?  Til að hindra að við löbbum út af jörðinni.

Ekki að ég vilji gefa þessum ösnum neinar hugmyndir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Einnig virðist sem loftslagsbreytinga-sinnar séu almennt í fullkominni afneitun um áhrif sólarinnar á jörðina.

Eins og orka sem skellur á lofthjúp jarðar er jafngildir 21 megatonna kjarnorkusprengingu á hverri einustu sekúndu hafi engin áhrif?

Getur verið að sólin sé kannski vél smíðuð af háþróuðum geimverum með þvílíkri nákvæmni að engar sveiflur verði í orkugeislun hennar?

Guðmundur Ásgeirsson, 26.7.2019 kl. 20:42

2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Sólin og önnur himintungl.  Allt togar og teygir á sprbaugnum, og yfirborði jarðar.  Pólarnir haldast ekki alveg kjurir.

Allt spilar inní samtímis.  Gerir útreikningana frekar erfiða.

Nei, það á að kenna koltvísýru um allt.  Það er einfalt.

Ásgrímur Hartmannsson, 27.7.2019 kl. 04:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband