23.1.2020 | 20:19
Ekki vandamál
Q: "Í sumum tilfellum hafði hættulaus startbyssa verið betrumbætt svo rækilega að skjóta mátti úr henni 34 föstum skotum á sekúndu."
Það eru meira en 2000 skot á mínútu. Til samanburðar er ROF úr MG 42 svons 1200 skot á mínútu, og þykir mikið, M-16 gátu afkastað ~900, og Kalashnikov getur puðrað út 500-600 skotum í mínútu, sem þýkir alveg nóg.
Hugsa ég þess vegna það þarna sé verið að bulla eitthvað. (Smá þekking á skotvopnum gerir alla þessa grein að mjög súrrealískum lestri.)
Q: "Við sjáum það að startbyssum hefur nú hin síðustu ár verið breytt í raunveruleg skotvopn ..."
Ég, og fæstir sem ég þekki myndu kalla hálf-einnota græjur á við breyttar startbyssur "raunveruleg skotvopn."
Þetta er ekki gert fyrir neinn alvöru þrýsting.
Þeir þarna í Osló ætti að vera glaðir meðan krimmarnir eru ekki með handsprengjur eins og þeir handan landamæranna. Það er sko alvöru.
Breyta startbyssum í banvæn vopn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.