13.4.2020 | 13:44
Ágúst Ólafur Ágústsson er listamaður
"Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður Samfylkingarinnar leggur til að ríkið greiði tífalt fleiri listamönnum listamannalaun á komandi tímum ..."
Sem er ekki það sem fyrirsögnin segir, enda hefur blaðamaður fallið í barnó.
"Sem stendur fá 325 listamenn (af 1.544 umsækjendum) rúmlega 407.000 í laun í allt frá þremur mánuðum til tólf á ári."
Fæstir þeirra skila nokkru.
Vinsælustu listamennirnir (þeir sem standa undir sér) eru ekki á þessum launum. Þeir eru að borga fyrir þetta.
Einmitt: vinsælir listamenn borga fyrir laun óvinsælla listamanna. Gott stöff, það.
"...leggur Ágúst Ólafur til að fjöldi þessara launþega verði tífaldaður, þannig að þeir yrðu um 3.500, og gjöldin fyrir ríkissjóð yrðu því 6,5 milljarðar."
Við ættum öll að sækja um þetta. Meiri líkur en Lottó.
Til að setja þessa tölu í samhengi, skrifar Ágúst Ólafur, er gott að hafa í huga að hvert 1%-stig í auknu atvinnuleysi, um 2.000 manns, kostar ríkissjóð 6,5 milljarða kr. eða það sama og kostar að tífalda listamannalaunin.
Semsagt, allir atvinnulausir, eða a.m.k mikill fjöldi þeirra verða listamenn núna?
"Hann heldur því fram að það muni því spara hinu opinbera fé, frekar en hið gagnstæða, að útgjöld séu aukin. Þar að auki skili aukin umsvif listamanna miklum fjármunum í ríkissjóð."
Þetta er skáldskapur. Fantasía, jafnvel erótísk. Eins og ég sagði í fyrirsögn: Ágúst Ólafur Ágústsson er listamaður.
Seðlabankinn er þgar byrjaður að prenta peninga, vitandi að það eru engir til í jafnvel nauðsynleg verkefni.
Q: "Seðlabankinn ætlar í fyrsta skipti að kaupa ríkisskuldabréf fyrir allt að 150 milljarða króna á þessu ári með peningaprentun og án þess að ganga á gjaldeyrisforðann."
Leggur til tíföld listamannalaun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
Peningaprentun setur af stað verðbólgu. Verðmætamengið stækkar ekkert við að starta prentvélunum, þetta þynnir bara verðgildi peninganna út. Mugabe var duglegur við þetta, við virðumst vera komin með einn slíkan í Seðlabankann. Hann fullyrðir að prentunin muni ekki valda verðbólgu en ef ekki þá slær þetta amk á verðhjöðnun sem ella hefði orðið. Sparifjáreigendur sem eru með litla sem enga vexti á innistæðum sínum blæða þar sem fjármunirnir étast upp í verðbólgu. Samt borga þeir fjármagnstekjuskatt af neikvæðum raunvöxtum.
Örn Gunnlaugsson, 13.4.2020 kl. 14:11
Þú skilur þetta.
Ásgrímur Hartmannsson, 13.4.2020 kl. 17:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.