Hvað kostar svona loðfeldur?

Skyndilega langar mig í einn.
mbl.is Nekt gegn loðfeldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vendetta

Þeir sem ganga í loðfeld eru meðsekir að dýraníði. Loðfeldur kostar kannski um 200.000 kr. en ætti að kosta 100 milljónir svo að enginn gæti keypt hann. Mundi bjarga mörgum dýrum frá ómannúðlegum dauðdaga. 

Vendetta, 27.1.2008 kl. 18:28

2 Smámynd: Pál Barna Szabó

vandetta ég er ósammála þér. Eigum við ekki að hætta borða kjöt líka? það myndi bjarga miklu fleiri dýrum frá ómannúðlegum dauðdögum.

Ómanúðlegum...mann, þetta eru ekki menn, .þetta eru dýr

Pál Barna Szabó, 27.1.2008 kl. 19:36

3 Smámynd: Sölvi Arnar Arnórsson

Ætli þetta fólk eigi leðursófasett, leðurskó eða leðurjakka.??.

Er ómannúðlegra að slátra Ref, en Nauti??.

Er betra að frammleiða allt í gerfiefnum, í stórum verksmiðjum sem að menga heilan helling, og fer illa með dýralíf í grendinni.

 Þetta fólk ætti að spóka sig um nakið uppi á Grænlandsjökli.

Sölvi Arnar Arnórsson, 27.1.2008 kl. 20:45

4 Smámynd: Fannar frá Rifi

Alveg æðislegt að sjá fólk vera að manngera dýr. reyna að gefa dýrum einhverja mannlega eiginleika. segja að þau hafi tilfinningar eins og við og svo framvegis...

Svona eins heimildarmyndinn um Bjarndýrs vininn sem síðan var étinn af einum Birninum. Dýr eru ekki menn.  

Við erum menn og í hundruð þúsunda ára höfum við veitt og etið dýr, notað afurðir þeirra og lifað  þannig af þeim.

Fannar frá Rifi, 28.1.2008 kl. 00:20

5 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Reyndar var kærasta bjarndýrsvinarins étin líka.  Þetta var mjög svangur björn.

Það er bara nýtni að vera í leðurjakka.  Ég hinsvegar veit ekki í hvað refakjötið fer.  Mig grunar - refafóður. 

Ásgrímur Hartmannsson, 29.1.2008 kl. 13:01

6 Smámynd: The Jackal

Ég sé enga ástæðu fyrir því að ofbeldi í garð dýra sé ómerkilegra en í garð manna. Öll höfum við taugar og öll finnum við líkamlegan sársauka.
En ef þau eru drepin á sársaukalausan máta ætti það að vera allt í lagi þar sem ég efast um að fjölskyldumeðlimir þeirra finni fyrir sama andlega sársaukanum og fólk.

The Jackal, 31.1.2008 kl. 13:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband