Bomban er einföld

Miklu einfaldari en flóknir hlutir eins og t.d. blýantar.  Þú bara hnoðar því í kúlu, sagar kúluna í tvennt, og lemur svo helmingunum saman með eins miklu afli og hægt er.

Svo eru þeir með á stefnuskránni að eyða Ísrael. 

Sem er ástæða þess að það er ekkert vel séð að þessir gæjar eru að föndra við að hreinsa úran. 

Ég veit ekki hve mikið vit þeir hafa á geislavirkni, en ég er að vona að þeir viti nákvæmlega hvað það stöff gerir.  Þó er ekki víst að það haldi mikið aftur af þeim.

Annars grunar mig að viðskiftaþvinganir séu ekkert besta aðferðin til að gera þá vinsamlega nokkrum manni... eða þjóð.  Þeir ættu frekar að demba sér í viðskifti við þá.  Siga Makkdónalds á þá.  Mikill er máttur Makkdónalds.

Já ég held það.  Hristum peninga framan í fólkið þeirra, og sjáum hvort það virkar ekki betur. 


mbl.is Rússar reiðubúnir að styðja refsiaðgerðir gagnvart Íran
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband