Ætla þeir að kaupa þessar rústir líka?

Á tvöföldu verði?  Nú og bæta þeim í safnið.  Hvernig gengur með Nike kofann?  Er þessi sorp-prammi enn fyrir framan?  En brunarústirnar þarna sem Kebab-húsið var?

Ahh... Kebab-húsið.  Sögufrægar mynjar.  Ég kom einusinni þar inn.  Fékk mér kebab.

Þessar rústir á myndinni gætu farið á allt að 500.000.000 kall.  Þá er bara að parkera sorp-pramma fyrir utan.  Töff lúkk.  Svo geta þeir kveikt í helmingnum af þessu, og þá lýtur þetta út alveg eins og Detroit - ef aðeins við gætum fengið tré og runna til að vaxa upp úr bílastæðunum líka.

Að því loknu bjóðum við Paul Verhoeven hingað til að taka upp Robocop 4. 


mbl.is Átak gegn niðurníðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband