4.5.2008 | 23:04
Þarf að hitta díler einn af þessum dögum
Spyrja hann út í hvað allt þetta stöff kostar. Í alvöru. Svo ég geti gert lærðar athugasemdir um allar þessar fréttir þar sem kemur fram meint andvirði einhverra efna úti á götu.
Og hvað ef þeir eru svo ekkert úti á götu? Hvað ef þeir senda heim?
Það væri flott, þú færir bara inn á kókaín.is, og krossaðir við einhver hök, svona eins og þegar maður kaupir flugfar, nú eða pizzu, og skömmu seinna kemur gæi með efnin til þín.
Hvernig væri það.
En aftur að fréttinni: nú þegar þeir eru búnir að ná öllum þessum efnum, og reikna út söluandvirði þeirra, hækka þau þá ekki í verði strax? Ég meina, þetta er slatti af efni, sem hefur slæm áhrif á framboð sem hefur iðulega slæm áhrif á verð - fyrir kaupandann.
Ég meina, þetta er bara gangur náttúrunnar - eða Kapítalismi, eins og sumir vilja kalla þetta. Svo ónáttúrulegt fólk, þessir kommar.
Náðu kókaíni að verðmæti 2 milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
Þú finnur hann örugglega í atvinnuauglýsingasíðunum
HDN (IP-tala skráð) 4.5.2008 kl. 23:35
Það er alveg jafn óljóst að segja hve marga hægt er að drepa með þessu og að segja hvað þetta kostar. Þetta verkar ekki eins vel á alla. Hjartasjúklingar til dæmis deyja við smá skammta, vel byggt fólk þolir slatta.
Reyndar, ef drápsgeta er það eina sem skiftir máli, hvað þá með önnur lyf: aspirín, til dæmis? Það er mjög deadly.
Ásgrímur Hartmannsson, 5.5.2008 kl. 01:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.