18.6.2008 | 18:04
Áætlun fyrir ykkur:
Áætlun 1: skjótið kvikyndið bara. Ekki kalla á víkingasveitina, ekki tilkynna yfirvöldum, náið bara í riffil* og skjótið. Ég veit ekki hvernig best er að matreiða ísbjörn. Prófið ykkur áfram.
Áætlun 2: Hringið í gæann þarna á Egilstöðum og látið hann deyfa dýrið og setja það í kassa. Næsta stopp: húsdýragarðurinn.
Áætlun 3: tilkynnið yfirvöldum, og fáið ykkur bjór. Skemmtið ykkur svo í nokkra daga meðan löggan girðir svæðið af, víkingasveitin og allir great white hunter wannabe-gæjarnir mæta, allt flug yfir verður bannað og fjölmiðlar tryllast vegna hinnar mjög svo friðuðu og banvænu skepnu sem ráfar um, drepandi ímyndað fólk af ýmsu tagi með augnarráðinu einu.
*.22 er ekki nóg, wannabe ísbjarnarmatur.
Unnið að viðbragðsáætlun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.