Áætlun fyrir ykkur:

Áætlun 1: skjótið kvikyndið bara.  Ekki kalla á víkingasveitina, ekki tilkynna yfirvöldum, náið bara í riffil* og skjótið.  Ég veit ekki hvernig best er að matreiða ísbjörn.  Prófið ykkur áfram.

Áætlun 2: Hringið í gæann þarna á Egilstöðum og látið hann deyfa dýrið og setja það í kassa.  Næsta stopp: húsdýragarðurinn.

Áætlun 3: tilkynnið yfirvöldum, og fáið ykkur bjór.  Skemmtið ykkur svo í nokkra daga meðan löggan girðir svæðið af, víkingasveitin og allir great white hunter wannabe-gæjarnir mæta, allt flug yfir verður bannað og fjölmiðlar tryllast vegna hinnar mjög svo friðuðu og banvænu skepnu sem ráfar um, drepandi ímyndað fólk af ýmsu tagi með augnarráðinu einu.

*.22 er ekki nóg, wannabe ísbjarnarmatur.


mbl.is Unnið að viðbragðsáætlun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband