26.7.2008 | 19:50
Eru þeir nú farnir að senda sérsveitina í partý?
Lögreglan fékk klukkan 6 í morgun tilkynningu um karlmann, sem lægi fyrir utan húsið. Maðurinn reyndist vera ökklabrotinn og með töluverða áverka í andliti. Að sögn lögreglu, var maðurinn, sem hafði verið gestkomandi í húsinu, fluttur með sjúkrabíl á slysadeild í Reykjavík. Vegna alvarleika málsins fjölmenntu lögreglumenn og réðust til inngöngu í húsið en þar stóð yfir samkvæmi. Lögreglan á Suðurnesjum þáði aðstoð sérsveitar ríkislögreglustjóra og handtók fólkið, sem talið var hafa neytt fíkniefna.
Ekki gera þeir þetta í hvert sinn sem einhver finnst illa til reika úti á götu? Hvað nákvæmlega gerir þetta mál alvarlegra en venjuleg ofbeldisverk sem framin eru um hverja helgi?
Grunar mig að hér sé ekki allt sem sýnist.
Átta handteknir í Keflavík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
Geta verið þaktir aðilar
Óli (IP-tala skráð) 26.7.2008 kl. 21:59
Vegna aðstæðna.... minn kæri, minn kæri!!! Svona lagað á sér venjulega stað fyrir utan skemmtistaði ... en ekki "heimahús" !!
Auður (IP-tala skráð) 26.7.2008 kl. 23:17
Já. Að vera barinn í köku er auðvitað miklu alvarlegra fyrir utan heimahús en fyrir utan krá...
Gldir það sama um morð?
Ásgrímur Hartmannsson, 30.7.2008 kl. 12:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.