9.10.2008 | 15:11
Mikilvægir partar:
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins var hringt í Kaupþing í London fyrir kl. 7 í gærmorgun og bankinn krafinn um 300 milljóna punda greiðslu fyrir kl. 9 um morguninn, og jafnframt var honum greint frá því að innan tíu daga yrði Kaupþing í Bretlandi að reiða fram 2,3 milljarða punda, sem er jafnhá upphæð og öll innlán dótturfyrirtækisins.
Við vorum ekki í vanskilum, vorum með nægt laust fé og góða eignastöðu. En fyrirtækið var tekið af okkur með valdi í Bretlandi og við gátum ekkert gert, sagði viðmælandi Morgunblaðsins á tólfta tímanum í gærkvöld.
?!?!?
Kaupþingsmenn eru sannfærðir um að Alistair Darling, fjármálaráðherra Breta, hafi í máli sínu í gærmorgun verið að vísa til orða Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra í Kastljósi Sjónvarpsins í fyrrakvöld, þegar hann greindi frá því að Íslendingar ætluðu ekki að borga. They are not going to pay! sagði ráðherrann. Telja þeir að þessi túlkun fjármálaráðherrans á orðum seðlabankastjóra, með skírskotun til tryggingagreiðslna vegna Icesave-innlánsreikninganna, hafi riðið baggamuninn og allt traust erlendra lánardrottna hafi beinlínis gufað upp á augabragði.
Hann hefði getað einangrað vandann. En nei... Í stað þess að yfirtaka einn banka þar sem stundað er kreatíft bókhald, þá er grafið undan öllum.
Ja hérna.
FME yfirtekur Kaupþing | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
Kapítalisminn er hruninn !!!!
Jessss.....brosið hringinn með roð í kinnum!!!!
Dís
sigríður bryndís baldvinsdóttir (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 19:15
Neibb. Þetta er kapitalismi in action.
Það er náttúrulegur tendens - lestu þér til um atferlisfræði, hegðun hryggdýra, og þú munt sjá hvað er í gangi.
Ásgrímur Hartmannsson, 9.10.2008 kl. 23:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.