4.11.2008 | 23:21
Var ekkert á hausnum eins og okkur var sagt
Ef þetta fyrirtæki var svona ofsalega mikið á hausnum, hvar fengu þeir þá 100.000.000.000?
Mér sýnist greinilegt samt að þeir vissu hvað var framundan: þjóðnýting.
Semsagt, þeir vissu vel hvað Seðlabankinn ætlaði að gera, löngu á undan okkur, sauðsvörtum almúganum.
Þeir voru ekkert á hausnum, en samt átti að þjóðnýta batteríið?
Einhver útskýri hvað er í gangi? Þetta lýtur alveg fullkomlega rangt út, allt saman. Var Glitnir þá kannski ekkert á leið í þrot heldur, alveg eins og Jón Ásgeir er alltaf að segja?
Ég er bara farinn að efast mikið um það.
100 milljörðum skotið undan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
Þeir fengu náttúrulega 500.000.000 evrur lánaðar frá seðlabankanum til að fjármagna þenna flutning...
Með veði í dönskum banka sem er orðinn verðlaus í dag...
Kjartan (IP-tala skráð) 5.11.2008 kl. 00:44
Ekki má fullyrða en mér finnst þetta alt saman stríðs peningur.
Ekki má heldur gleyma að Íslendingar eru með vopna flutning reynslu.
Andrés.si, 5.11.2008 kl. 02:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.